Hönnunin byggir á kyrrralífs ljósmyndum og textum sem ég skrifa til dýpkunar og innblásturs, orðaperlum. Að koma auga á töfrandi augnablik og fanga stemninguna, eða að skapa stemningu sem miðlar mýkt og hlýleika á uppbyggjandi og eflandi hátt, er mitt hjartans áhugamál. Innblásið úr reynsluheimi mínum innan líknarhjúkrunar þar sem ekkert er sjálfgefið, - og líf, umhyggja og áhugi á velferð annarra
er dýrmætara en allt. Dagatölin og Orðaperlur til þín eru sérlega fallegar og gefandi gjafir og kortin má nota við öll tækifæri. Tækifæriskortin, samúðarkortin og jólakortin eru prýdd ljúfum stemningar ljósmyndum og innan í þeim er að finna mismunandi orðaperlur í fallegu letri vinstra megin á opnu. Verið einnig velkomin að fylgjast með á fb síðunni okkar "Sigluvík Guesthouse / Gisting 601 Akureyri" en við leigjum út rúmgóða, notalega íbúð hér á neðri hæðinni hjá okkur í kyrrðinni hér við Eyjafjörðinn. Dásamlegt útsýni, heitur pottur og rúm fyrir allt að 10 manns í fjórum herbergjum. Hlýjustu kveður,
Kristín S. Bjarnadóttir
Sölustaðir Blúndu og blóma:
Vefverslun, allar vörur: www.blundurogblom.is
Dagatöl, Orðaperlur til þín og kortapakkar:
- Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Eyjafjarðarsveit (opið á sumrin)
Tækifæriskort og samúðarkort:
- Blóm og fiðrildi, Suðurveri, Reykjavík
Samúðarkort:
- Blómabúð Akureyrar
Einnig eftir samkomulagi hér í Sigluvík á Svalbarðsströnd og svo eru Blúndurnar og blómin oft að poppa upp hér og þar, nánar auglýst hér á síðunni hverju sinni.