Eiðistorg

Eiðistorg Verslunarmiðstöð Eiðistorgi - Seltjarnarnesi

21/11/2025
29/05/2023

Kæru vinir, í dag annan í hvítasunnu tekur Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir á móti gestum á sýningu sína LiT-ROF kl. 14-16.

*ATH! gengið inn frá Eiðistorgi 2.hæð.

Opið virka daga 10-18:30 og föstudag 10-17.

04/05/2023

Það verður líf og fjör og markaðsstemning á Eiðistorgi laugardaginn 6. maí frá kl. 10-17 þegar að allt milli himins og jarðar, notað og nýtt, verður boðið til sölu í alls 34 básum. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta, upplifa stemninguna og gera að sjálfsögðu góð kaup.

14/04/2023

Nú er loksins komið að þessu! 🎉
Eiðistorgið er svo flottur staður og okkur hefur lengi langað að koma aftur með markaðs stemminguna sem var hér áður fyrr. ❤
Fyrsti markaðurinn verður haldinn 6.maí kl 10 - 17.
34 básar eru í boði!
Einstaklingar að selja sína einkaeign og smærri fyrirtæki velkomin að taka þátt.
Fyrst þetta skemmtilega verkefni er enn á tilraunar stigi þá ætlum við að hafa bása verðið í ódýrari kantinum.
Hver bás mun kosta 3000kr
Til að næla sér í bás sendirðu okkur póst á [email protected]
Ath einstaklingar þurfa að koma sjálfir með alla hluti eins og borð/slá. Einnig þurfa allir að fjarlægja alla hluti í lok dag. Gott að miða við að skilja við staðinn eins og við fengum hann ❤

Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningarinnar INNGRIP fimmtudaginn 27. janúar kl. 17.00 Sigurður Magnússon lauk M.A – pr...
24/02/2020

Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningarinnar INNGRIP fimmtudaginn 27. janúar kl. 17.00

Sigurður Magnússon lauk M.A – prófi í listmálun frá Central Saint Martins College of Art and Design, The London Instetude. 1996. Áður hafði hann stundað myndlistanám í Goldsmiths College. Unieversity of London, 1993-1994 og B.A.- prófi í málun frá MHÍ 1991. Sigurður hefur haldið málverkasýningar hér heima og erlendis og eru myndir eftir hann í eigu safna, fyrirtækja og einstaklinga.

Að trúa eigin augum
„Fyrir tveim öldum var fegurðarskynið í íslensku bændasamfélagi bundið við lífsbjargir. Það var fallegt þar sem vel veiddist eða þar sem grasið var grænt. Engum datt í hug að fara á fjöll til að komast á tindinn og njóta útsýnisins frá toppnum. Menn fóru á fjöll til að smala fé eða ná sér í maka í næsta firði eða í næsta dal – það var ekkert verið að fara í erindisleysu. Það er ekki fyrr en við þéttbýlismyndun að menn fara að sakna náttúrunnar, sveitarinnar og sjá hana í upphöfnu ljósi. Sjálfstjáning blómstrar og menn fara að mála og yrkja um heilög fjöll, ganga jafnvel enn lengra og fara að túlka óræð áhrif náttúrunnar með formum og litum. Akkúrat það sem Sigurður Magnússon gerir. Það er afar mikilvægt jafnt fyrir listamenn sem fagurkera, þeirra sem njóta listar, að trúa eigin augum. Fegurðin liggur ekkert frekar í sköpunarverkinu sjálfu heldur en í huga fólks sem horfir á. Það á aldrei að segja fólki hvað sé fallegt eða hvað sé ekki fallegt. Við drögumst nefnilega ósjálfrátt að þeim verkum sem eru hljómspegill okkar eigin tilfinninga eða reynslu. Já bara eins og gamlir íslenskir málshættir; Sínum augum lítur hver á silfrið, hverjum þykir sinn fugl fagur eða einfaldast og best: Sitt sýnist hverjum!“
goddur

Velkomin(n) á sýninguna INNGRIP í Gallerí Gróttu, sýningarsal á Bókasafni Seltjarnarness 2. hæð á Eiðistorgi.

10/02/2020

Vertu velkomin(n) á Bókasafn Seltjarnarness í dag kl. 17.30 þegar að Þorbjörg Hafsteinsdóttir höfundur bókarinnar Ketóflex 3-3-1 og einn helsti heilsufrumkvöðull landsins verður gestur okkar. Hún fjallar um bók sína og gefur lesendum góð ráð. Bækur hennar, námskeið og fyrirlestrar hafa notið mikilla vinsælda hér heima og erlendis. Allir velkomnir. Kaffi og með því!

Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningarinnar NÝ VERK fimmtudaginn 23. janúar kl. 17.00 Steingrímur Gauti Ingólfsson er ...
20/01/2020

Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningarinnar NÝ VERK fimmtudaginn 23. janúar kl. 17.00

Steingrímur Gauti Ingólfsson er fæddur í Reykjavík 1986. Hann útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur verið virkur í sýningarhaldi síðustu ár, en þetta er níunda einkasýning hans. Steingrímur er í samstarfi við Tvo Hrafna Listhús.

„Ef við hugsum um þetta sem eða eins og færni eða tungumál. Þá er Steingrímur Gauti reiprennandi, fullfær. En það er ekki endilega, alltaf, það sem málari vill. Né má það vera endanlegur endapunktur. Hvað gerir maður þegar eitthvað sem var erfitt er orðið auðvelt? Leyfir maður því að vera auðvelt, eða reynir maður að gera það erfitt aftur? Að nota vinstri, hafa pensilinn lengri, styttri, óþjálli, ekki kveikja ljósin á vinnustofunni, strekkja strigann skakkt? Hvað gerir maður eftir uppljómunina?

Því dagurinn er á endanum mikið eins fyrir og eftir, erfiður og auðveldur, það breytist allt og ekkert. Þó eru málverkin í dag ekki þau sömu og þau sem komu áður. En þau breytast kannski meira innan á heldur en utan á. Þá hefur þetta kannski eitthvað við okkar merkingu á þessum orðum að gera: erfitt, auðvelt. Það þarf að varast að kalla það sem er auðvelt náttúrulegt, eða örlög, það sem ég, þú, við, áttum alltaf að vera að gera. Simpansar, ef þeir læra ekki í æsku, frá móður sinni, návist trjáa, frá samöldrum, að klifra — að læra með fót- og handaputtum hversu þykkar greinarnar þurfa að vera til að bera þyngd þeirra, hverskonar línu maður á að taka upp eða í gegnum tré — þá læra þeir ekki að klifra. Þeir detta úr trénu, fara út á greinar sem brotna undan þeim, vilja minna við tré að gera, hugsanlega fara að gera eitthvað annað. Örlögin eru þannig flókin. En það er satt að eftir að maður finnur þessa þyngd, áþreifanleikann, hvað ber mann uppi og hvað ekki, þá má hugsanlega líka byrja á einhverju.

Ef við segjum þetta um þessi verk þá getum við sagt líka að þau gefi okkur nokkra valmöguleika. Þau eru mismunandi, en kannski af sama eðli, skyld. Það er mikið á strigunum. Stundum mikið sem lítur út eins og lítið, og lítið eins og mikið. Auðvelt eins og erfitt og öfugt. En þá er það kannski ekki lína sem er þarna á milli.“

Starkaður Sigurðarson


Velkomin(n) á sýninguna NÝ VERK í Gallerí Gróttu, sýningarsal á Bókasafni Seltjarnarness 2. hæð á Eiðistorgi.

Bestu kveðjur,

Góðan daginn – það er ýmislegt skemmtilegt um að vera í desember á Bókasafni Seltjarnarness, nýjar bækur streyma í hús o...
03/12/2019

Góðan daginn – það er ýmislegt skemmtilegt um að vera í desember á Bókasafni Seltjarnarness, nýjar bækur streyma í hús og boðið er upp á bókaupplestur og jólafjör.
Í þessari viku verður bæði bókmenntakvöld og tvær sögustundir fyrir börn á ólíkum aldri – ekki missa af jólastemningunni á bókasafninu.

þriðjudaginn 3. desember kl. 19.30 kemur Andri Snær Magnason á bókmenntakvöld,
les upp úr og spjallar um nýútkomna bók sína Um tímann og vatnið. Kaffi og jólakruðerí í boði!

Miðvikudaginn 4. desember kl. 17.00-17.30 verður sögustund fyrir yngstu börnin þegar að
höfundar bókanna um hann Kormák, þær Elsa Nielsen og Jóna Valborg lesa og spjalla við krakkana.

Miðvikudaginn 4. desember kl. 17.30 – 18.00 ætlar Eva María Jónsdóttir einn höfundur nýju barnabókarinnar
Skuggahliðin jólanna að lesa upp úr þessari nýútkomnu bók sem hefur að geyma safn kvæða og sagna frá liðinni öld.

Gallerí Grótta.Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningarinnar FJARSTÖRNUR OG FYLGIHNETTIR fimmtudaginn 28. nóvember kl. 1...
26/11/2019

Gallerí Grótta.

Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningarinnar FJARSTÖRNUR OG FYLGIHNETTIR fimmtudaginn 28. nóvember kl. 17.00

Katrín Matthíasdóttir útskrifaðist frá Ludwig-Maximilian háskólanum í München árið 1998 með M.A. gráðu í þýsku sem aðalfag og norræn fræði og heimsspeki sem aukafög. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á myndlist en hóf ekki að mennta sig í listinni fyrr en eftir að heim var komið frá Þýskalandi. Katrín sótti ýmis námskeið í olíumálningu við Myndlistarskólann í Kópavogi á árunum 2007-2010 og hefur haldið einkasýningar m.a. í Gallerí Fold 2018, Norræna húsinu 2017, Gerðubergi 2015 og tekið þátt í ýmsum samsýningum hér heima en einnig erlendis m.a. INTERBIFEP í Bosníu og Hersegóvínu 2015 og í Fredriksborgarhöll í Danmörku. Hún hlaut verðlaun í samnorrænu portrettkeppninni „Portræt Nu“ árið 2011. Katrín hefur einnig myndskreytt tvær barnabækur, „Húsið á heimsenda“ og „Ævintýrið um litla Dag“.

Katrín telst fígúrutífur listamaður á listamannsrófinu en hefur þó reynt sig við ýmsar listaðferðir. Verk hennar hafa oft samfélagslega og pólitíska skírskotun, þar sem loftslagsbreytingar og misskipting auðs og gæða eru áberandi en einnig ranglæti í tilvistarlegu samhengi við eigin vegferð í gegnum lífið.

Innblástur sýningar Katrínar í Gallerí Gróttu er fenginn úr gömlum kvikmyndabæklingum alþjóðlegra kvikmynda frá sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Bæklingarnir voru keyptir á flóamarkaði í Berlín sumarið 2018 og fluttir í vistarverur listakonunnar í austurhluta borgarinnar. Þar lágu þeir afskiptir í breiðri gluggakistu þar til sólin glóði á þá eitt sumarheitt síðdegið þegar gluggar voru opnir upp á gátt og lífið við Neue Bahnhofstrasse var óðum að breytast í þann suðupott menningar sem hvergi finnst annars staðar en í Berlín.

Stjörnurnar á myndunum kunna að vera fjarri okkur í tíma og rúmi og kannski má segja að járntjald, kynslóðir og ljósár skilji þær frá okkur, að ógleymdum Berlínarmúrnum sjálfum. Stjörnurnar eru þó ekki fjær okkur en svo að listakonan er fædd um það leyti sem bæklingarnir komu út og því má segja að kvikmyndir þessara stjarna hafi ferðast í hálfa öld og séu því komnar 50 ljósár frá okkur. En hugurinn er fljótur í förum og þá skipta tjöld og ljósár litlu máli.

Á strigunum á þessari sýningu, eru svarthvítar (fjar)stjörnur gæddar lit og lífi, staðsettar í ókunnugri framtíð – einmitt þeirri þar sem tilvera okkar snýst um hamfarahlýnun af manna völdum. Allar viðvörunarbjöllur klingja og óma um heimsbyggðina og sumar voru farnar að hljóma þegar þessar stjörnur skinu sem skærast og bæklingarnir litu dagsins ljós. Við þekkjum ekkert annað heimili en bláa hnöttinn, móður jörð. Pláneta B er óraunhæf, útópísk. En þó erfiðleikar steðji að okkur, speglast óstöðvandi afl breytinga, nýrrar hugsunar og vonar í augum okkar og í bliki stjarnanna.

Velkomin(n) á sýninguna Fjarstjörnur og fylgihnettir í Gallerí Gróttu, sýningarsal á Bókasafni Seltjarnarness 2. hæð á Eiðistorgi.

Address

Eiðistorg
Seltjarnarnes
170

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 18:00
Sunday 00:00 - 18:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Eiðistorg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Eiðistorg:

Share