Pei Með Pei getur þú keypt strax það sem þig vantar og borgað eins og þér hentar best.

Með Pei geturðu keypt núna og borgað seinna. Þegar þú gengur frá kaupum færðu alltaf 14 daga greiðslufrest sem er hægt að lengja í 30 eða 60 daga, eða dreifa í allt að 48 mánuði.

Í Pei appinu geturðu skoðað heimildina þína og fundið lista yfir alla 1.500 söluaðilana sem taka við Pei sem greiðslu. Þú finnur Pei appið í App Store eða Google Store og notar rafræn skilríki til að innskráningar.

Það

eru tvær leiðir til að borga með Pei:

*Í vefverslun

Þegar þú ert að borga velurðu Pei sem greiðsluleið. þú færð í kjölfarið greiðsluseðil í heimabanka með 14 daga fresti. Innan þessa 14 daga getur þú farið inná þjónustuvefinn eða appið og sótt um 30 eða 60 daga frest eða dreift greiðslunum í allt að 48 mánuði.

*Í verslun
Ef þú ert með Pei appið getur þú greitt með því í verslun á svipaðan hátt og þegar greitt er með greiðslukorti í síma. Þú velur Pei sem greiðsluleið í posa eða kassakerfi, þú færð í kjölfarið greiðsluseðil í heimabanka með 14 daga fresti. Innan þessa 14 daga getur þú farið inná þjónustuvefinn eða appið og sótt um 30 eða 60 daga frest eða dreift greiðslunum í allt að 48 mánuði.

30/12/2025

🎄 PEI jólasveinninn lokar dagatalinu – og hér er síðasti útdrátturinn! 🎁

Sleðinn er orðinn tómur, pokinn líka og jólasveinninn búinn að standa við stóru orðin. Þetta eru síðustu nöfnin sem komu upp áður en jólafríið tekur við:

✨ 22. desember – Brá Verslun, 20.000 kr. gjafabréf:
Ingibjörg Eðvarðsdóttir

✨ 23. desember – Nettó, 30.000 kr. gjafabréf:
Hulda Björk Brynjarsdóttir

✨ 23. desember – Óskabönd, Orkusteinakeðja:
Ragnhildur Elín Garðarsdóttir

✨ 24. desember – Partýbúðinin, áramótapakki:
Axel Gústafsson

Til hamingju öll!
Sigurvegarar vitja vinninga með því að senda póst á [email protected]

Með þessu er PEI jóladagatalið komið í hús. Takk fyrir þátttökuna, takk fyrir samstarfið og gleðileg nýtt ár! 🎅🔥

Jólin eru gengin í garð og löng og ströng vertíð PEI jólasveinsins senn á enda. Hann þakkar vinum sínum, gömlum sem og n...
25/12/2025

Jólin eru gengin í garð og löng og ströng vertíð PEI jólasveinsins senn á enda. Hann þakkar vinum sínum, gömlum sem og nýjum, fyrir frábæran desembermánuð, og óskar þeim gleðilegs aðfangsdags. Frídögunum ver hann í faðmi fjölskyldu og vina, og hleður batteríin fyrir risapartý á gamlárskvöld. PEI jólasveinninn er nefnilega partípinni og sprengjusjúkur, og leiðir hugann dreyminn til litadýrðarinnar, látanna og gáskafullra sprengjustælanna.

Hann gefur einum ótrúlega heppnum vini sínum áramótapakka að andvirði 20.000 kr frá Partýbúðinni. Til að eiga möguleika á að vinna þarftu ekki nema að fylgja PEI og Partýbúðin á samfélagsmiðlum, læka þessa færslu og skilja eftir komment. Hvers hlakkar þú til á árinu 2026?

PEI jólasveinninn sinnir andlegu hliðinni þessa Þorláksmessuna, og velur sér fagurt orkusteinahálsmen til að klæðast und...
23/12/2025

PEI jólasveinninn sinnir andlegu hliðinni þessa Þorláksmessuna, og velur sér fagurt orkusteinahálsmen til að klæðast undir skyrtunni. Hann staldrar við og spyr sig: hvað vil ég á þessu tiltekna lífsskeiði mínu? Eftir djúpa íhugum velur hann sólarsteininn: sjálfsöryggi, heppni og velgengni, og horfir björtum augum fram veginn.

Þú getur líka fengið hálsmen frá Óskaböndum. Það eina sem þú þarft að gera til að komast í pottinn er að fylgja PEI og Óskabönd á samfélagsmiðlum, læka þessa færslu og skilja eftir komment. Hvaða stein myndir þú velja þér?

Carnelian – Hlýja, styrkur, hugrekki og sköpunargáfa
Tígrisauga – Jarðtenging, vernd og heiðarleiki
Jade –heppni, róandi, sjálfsöryggi
Sunstone– sjálfsöryggi, heppni og velgengni
Labradorite– Innsæi, styrkur og viska

PEI jólasveinninn veit að jólagleðin býr í aðdraganda jóla og hugsar sér gott til glóðarinnar. Dagurinn kallar á búðarfe...
22/12/2025

PEI jólasveinninn veit að jólagleðin býr í aðdraganda jóla og hugsar sér gott til glóðarinnar. Dagurinn kallar á búðarferð þar sem kerran er fyllt af góssi – kjeti, smjeri og svo framvegis, og kvöldinu svo varið fyrir framan sjónvarpið. Ætli The Holiday með Jude Law verði fyrir valinu nítjánda árið í röð? Alveg pottþétt.

PEI jólasveinninn gefur einum fylgjanda PEI og Nettó sem lækar þessa færslu og skilur eftir komment 30.000 kr. gjafabréf í Nettó.

22/12/2025

🎄 PEI jólasveinninn er kominn í endasprettinn – og hér eru sigurvegarar 19.–21. desember! 🎁

Dagarnir styttast, pakkarnir fjölga sér og sleðinn er enn á ferðinni.

✨ 19. desember – Klukkan, eyrnalokkar og armband:
Kristín Björk Hermannsdóttir

✨ 20. desember – Hagkaup, 20.000 kr. gjafabréf:
Dagfríður Pétursdóttir

✨ 21. desember – Attikk, 20.000 kr. gjafabréf:
Sesselja Ríkey Theódórsdóttir

Til hamingju allar þrjár!
Sigurvegarar vitja vinninga með því að senda póst á [email protected]

Lokakaflinn er í gangi – jólasveinninn er ekki búinn fyrr en síðasti pakkinn er farinn út. 🎅🔥

PEI jólasveinninn státar af afbragðs tískuviti, og er það löngum orðin jólahefð að hann bregði sér í tískuvöruverslun og...
22/12/2025

PEI jólasveinninn státar af afbragðs tískuviti, og er það löngum orðin jólahefð að hann bregði sér í tískuvöruverslun og kaupi fallegt jóladress fyrir frúnna. Hann hlakkar til að færa henni eitthvað fallegt og fá stóran koss á kinn í þakkarskyni. Svona eiga jólin að vera!

Til að eiga möguleika á að vinna 20.000 kr gjafabréf frá BRÁ verslun þarftu ekki nema að fylgja PEI og Brá Verslun verslun á samfélagsmiðlum, setja læk á þessa færslu og kommenta á hana.

Fjórði og jafnframt sá seinasti í aðventunni er runninn upp og PEI jólasveinninn búinn að strika yfir allt á aðgerðaáætl...
21/12/2025

Fjórði og jafnframt sá seinasti í aðventunni er runninn upp og PEI jólasveinninn búinn að strika yfir allt á aðgerðaáætlun jóla 2025. Nú er fókus settur á það sem honum finnst skemmtilegtast, og hann setur stefnuna á sitt eftirlætis tískuafdrep: ATTIKK. Þar finnur hann alltaf einhverjar hátískukonfektmola, helst í samfloti við góðan vin.

Til að eiga möguleika á að vinna 20.000 kr gjafabréf í ATTIKK þarftu ekki nema að fylgja PEI og Attikk á samfélagsmiðlum, læka þessa færslu og skilja eftir komment.

Það er kominn jólaórói í PEI jólasveininn. Til að slá á kvíðann þá brunaði hann í Hagkaup seint í gærkvöld og greip það ...
20/12/2025

Það er kominn jólaórói í PEI jólasveininn. Til að slá á kvíðann þá brunaði hann í Hagkaup seint í gærkvöld og greip það sem huginn girntist. Þar keypti hann sér þær kræsingar sem vantaði í matarkistuna, garn til að prjóna seinustu gjafirnar, krem til að setja á baugana og slopp til að klæðast á jóladagsmorgunn.

Eftir heimsóknina lá líka svona hrikalega vel á honum, og hann ákvað að gefa einum vini sínum 20.000 kr gjafabréf í Hagkaup til að dreifa gleðinni. Það sem þú þarft að gera til að eiga möguleika á að vinna er að fylgja PEI og Hagkaup á samfélagsmiðlum, læka þessa færslu og skilja eftir komment.

19/12/2025

🎄 PEI jólasveinninn er kominn vel yfir miðjan mánuð – og heldur áfram að dreifa gleði.
Hér eru sigurvegarar 16.–18. desember! 🎁
Þessi þrjú nöfn fá að gleðjast aðeins fyrr:

✨ 16. desember – Handverkshúsið, 25.000 kr. gjafabréf:
Svanhildur Hlöðversdóttir

✨ 17. desember – Mi búðin, Xiaomi ryksuguróbot:
Eva Hauksdóttir

✨ 18. desember – Húsasmiðjan, 30.000 kr. gjafabréf:
Davíð Jónsson

Til hamingju öll þrjú!
Sigurvegarar vitja vinninga með því að senda póst á [email protected]

Endaspretturinn er hafinn – og PEI jólasveinninn á enn nokkur tromp eftir. 🎅🔥

Gimsteina og perlur, gullsveig um enni, sendi ég henni, ástinni minni“ söng skáldið, og ekki af ástæðulausu. Það er ekke...
19/12/2025

Gimsteina og perlur, gullsveig um enni, sendi ég henni, ástinni minni“ söng skáldið, og ekki af ástæðulausu. Það er ekkert jafn áhrifamikið og fagurt skart undir trénu. PEI jólasveinninn kaupir fallegt gullsett frá Klukkunni fyrir frúnna og annað auka fyrir vin eða vinkonu til að fá.

Það sem þú þarft að gera til að eiga séns á að vinna eyrnalokka og armband frá Klukkunni er að fylgja PEI og Klukkan á samfélagsmiðlum, læka þessa færslu og skilja eftir komment.

Það er vika til stefnu og PEI jólasveinninn minnir á að það er engin ástæða til að fríka út, ALLS ENGIN ÁSTÆÐA, minnir h...
18/12/2025

Það er vika til stefnu og PEI jólasveinninn minnir á að það er engin ástæða til að fríka út, ALLS ENGIN ÁSTÆÐA, minnir hann kannski aðallega sjáfan sig á. Hann mætti samt alveg við því að lakka gluggakisturnar, og mætti alveg við einni seríu í viðbót á pallinn, já og pallaolíu fyrir vorið (aldrei of undirbúinn) og nýjan stand undir jólatréð ef þessi skildi gefa sig.
Hann brunar í Húsasmiðjuna til að slá alla mögulega varnagla og reddar sér 30.000 króna gjafabréfi í leiðinni til að gefa einum vini sínum.

Það eina sem þú þarft að gera til að eiga möguleika á að vinna gjafabréfið er að læka þessa færslu, kommenta á hana og fylgja PEI og Húsasmiðjan á samfélagsmiðlum.

Address

Katrínartún 4
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Telephone

5275400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Pei posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Pei:

Share