VIDEOheimar

VIDEOheimar VIDEOheimar hófu rekstur árið 1990 og hefur byggt upp ótrúlegt úrval af myndum VIDEOheimar er kvikmyndamiðstöð heimilanna. Vertu velkomin - sjón er sögu ríkari.

Við eigum urmul af VHS myndum, DVD og Blue Ray í tugþúsundavís. Í VIDEOheimum er uppröðun skipuleg eftir leikurum og efnisflokkun svo það er gott að líta við og gramsa. Finna gullmola, sem gleðja, örfa endurminningar eða fræða. Kaupum líka allt, sem gefið er út á Íslandi eins og við höfum gert í rúm 20 ár. Í VIDEOheimum er starfsfólk, sem elskar kvikmyndir og er annt um viðskiptavinina.

ALLRA, ALLRA síðasti dagur ÚTSÖLU aldarinnar í myndum.  Komdu að gramsa!
15/09/2013

ALLRA, ALLRA síðasti dagur ÚTSÖLU aldarinnar í myndum. Komdu að gramsa!

VERÐHRUN....   Útsölulok.  Jonah gengur aftur! Allar myndir á 200 kr stykkið.  Fjölmargir gullmolar eftir.  Allt á að se...
07/09/2013

VERÐHRUN.... Útsölulok. Jonah gengur aftur! Allar myndir á 200 kr stykkið. Fjölmargir gullmolar eftir. Allt á að seljast. Velkomin.

Dúndur.  Síðasta útsölu helgin.  Allt á að seljast.  Stórlækkað verð.  Myndir á 100 kr og 500 kr. Fyrstur kemur, fyrstur...
30/08/2013

Dúndur. Síðasta útsölu helgin. Allt á að seljast. Stórlækkað verð. Myndir á 100 kr og 500 kr. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Velkomin í veisluna. Síðustu forvöð að sjá glæsilegustu VIDEOleigu landsins áður en við lokum eftir helgi.

22/08/2013

ÚTSALA, ÚTSALA, ÚTSALAN heldur áfram. Hér kemur fólk nánast grátandi af gleði. Einn fann BALTO, sem hann keypti alsæll, önnur CROUCHING TIGER HIDDEN DRAGON, þriðji LORD OF THE RINGS og konan sem fann BEFORE SUNSET í gær nánast flaug út. Hún var búin að leita lengi. Endalausar sögur verða til. Velkomin.

21/08/2013

Elskulegu krakarnir á Barnaspítali Hringsins eru farin að njóta þess að horfa á myndirnirnar, sem VIDEOheimar gáfu þeim. Starfsmenn Barnaspítalans sögðu að krakkarnir væru sæl. VIDEOheimar og allir viðskiptavinir fá mikið þakklæti og viðurkenningarskjal.
ÚTSALAN heldur áfram af fullum krafti. Eigum enn um 10000 myndir! VELKOMIN öll sömul.

20/08/2013

Við höldum áfram útsölu aldarinnar. Þann 24. apríl 1998 leigðu VIDEOheimar út fyrsta DVD diskinn á Íslandi, Contact með Jodie Foster í aðalhlutverki!
Nú er útsala, útsala, ÚTSALA! Allt á að seljast. Viðtökurnar stórkostlegar en fullt eftir. Opið kl 14:00 til 24:00. Gullfalleg, fágæt plagöt líka til sölu og bara allt! VELKOMIN.

18/08/2013

Í fyrradag leigði VIDEOheimar út disk í síðasta sinn. Þann dag komu margir í hús færandi hendi. Blómvendir bárust og mikil gleði og þakklæti frá viðskiptavinum.
Á fyrsta degi útsölunnarí gær var mikið öngþveiti og varð sá dagur sá langannasamasti í tæpri 25 ára sögu! Er þetta ekki að enda með stæl? Viðskiptavinir komu nú með ljóð VIDEOheimum til heilla og enn komu rósir. Hvað skyldi gerast í dag? Starfsmenn eru þakklátir fyrir þessi fallegu, hlýju viðbrögð.
Útsalan heldur áfram, það sér vart högg á vatni. Nóg til. Opið kl 14:00 til 24:00. Velkomin.

15/08/2013

Komið er að lokum hjá VIDEOheimum. Diskurinn sem miðlandi kvikmyndum er á hnignunar skeiði, sem ekki sér fyrir endann á. Við því er ekkert að gera.
VIDEOheimar hafa átt mikilli velgengni að þakka í þessi tæpu 25 ár. Hér hafa komið milljónir manna, sem hafa verið aufúsugestir. Starfsmenn hafa glaðir allir lagt sig fram um að veita afbragðs þjónustu. Fyrir allt það er þakklæti efst í huga.
Næstkomandi laugardag kl 14:00 hefst hér rýmingarsala á öllum myndum VIDEOheima, plakötum o.fl. Þú ert velkomin.

Allt á að seljast!
Tugþúsundir mynda!
Blue Ray, DVD, VHS og PS2 leikir!
Flestar myndir textaðar!
Lág verð!
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Gnægð af áhugaverðu efni!
Flott Plaköt!

Pumping IronHver segir að Arnold kunni ekki að leika? Áður en Schwarzenegger sló í gegn í Conan og Terminator þá vann ha...
06/05/2013

Pumping Iron

Hver segir að Arnold kunni ekki að leika?
Áður en Schwarzenegger sló í gegn í Conan og Terminator þá vann hann herra alheimur 5 eða 6 sinnum sem er met; eða ekki; nenni ekki að googla það. Þetta vaxtarræktar tröll gerði hinsvegar heimildarmynd um síðustu keppni sína þar sem hann og aðrir vaxtarræktar karlar koma saman í lautarferðir og tala um tilfinningar sínar.
Í myndinni fær áhorfandinn að skoða bakvið tjöldin í þessari heimsfrægu keppni. Karlarnir leggja á sig gífurlega mikið til að móta líkama sinn í átt að fullkomnun. Ekki má gleyma mikilvægi þess að vera með réttu pósuna og er Tortímandinn duglegur í að leiðbeina hinum ungu og efnilegu nýliðum.
Tortímandinn og sjálfur Hulk (Lou Ferrigano) er helstu keppinautarnir þetta árið og beitir Arnold sálfræði hernaði gegn þeim sem standa í vegi hans að lokatitlinum. Hulk er mikið í mun að vinna þessa keppni og vill helst gera það á meðan Conan er að keppa, sorry er búinn að færa mig frá Tortímandanum yfir í Conan. Hercules a.k.a. Hulk a.k.a. Ferrigano og faðir hans æfa stíft í new york fyrir komandi keppni og er tekið vel á því.
Arnold Swchwarzenegger hafði svo sannarlega áhrif á börnin á 9. og 10. Áratugnum og man ég eftir mörgum vinum sem voru með plaggat af honum í engu nema sundskýlu að flexa tvíhöfðann. Hann lýsir hamingju sinni í að fara í ræktina í þessari mynd ýtarlega. ,,Þetta er eins og að fá fullnægingu, þegar ég er að lyfta lóðum þá er það bara eins og ég sé að fá það stanslaust”.
Þessi mynd er tær snilld og höfðar bæði til þeirra sem hafa gaman af líkamsrækt og þeirra sem vilja frekar halda áfram að styrkja líkamsræktarstöðina sína með korti sem er bara nýtt rétt eftir jólin á hverju ári.
Pumping Iron fæst á Videoheimum.

Gleðilegt sumar.

Directed by George Butler, Robert Fiore. With Arnold Schwarzenegger, Lou Ferrigno, Matty Ferrigno, Victoria Ferrigno. From Gold's Gym in Venice Beach California to the showdown in Pretoria, amateur and professional bodybuilders prepare for the 1975 Mr. Olympia and Mr. Universe contests in this part...

Nú er Silver Linings Playbook komin út á DVD.  Afskaplega áhugaverð mynd með stórgóðum leikurum.  Jennifer Lawrence fékk...
18/04/2013

Nú er Silver Linings Playbook komin út á DVD. Afskaplega áhugaverð mynd með stórgóðum leikurum. Jennifer Lawrence fékk Óskarinn fyrir frábæran leik í myndinni. Hún er rétt 22 ára og hefur átt góðu gengi að fagna í Hollywood. Jennifer er eiginlega sveitastelpa frá Kentucky og eftir því er tekið hve hispurslaus og einlæg hún er.
Hún vakti fyrst athygli rétt 14 ára og flutti fjölskyldan í kjölfar þess til Hollywood svo að Jennifer gæti reynt fyrir sér í draumaborginni. Þar hefur stelpunni heldur betur vegnað vel. Í VIDEOheimum getum við boðið nokkrar myndir með henni í misstórum hlutverkum. Þær eru (í tímaöð): The Burning Plain (2008), Winter´s Bone, Like Crazy, Beaver, X-Men First Class, Hunger Games, Silver Linings Playbook og House At The End Of The Street. Væntanlegar myndir, á þessu ári og því næsta, þar sem hún er í aðalhlutverkum eru: Serena, The Hunger Games Catching Fire, American Hustle og X-Men Days of Future Past. Fyllsta ástæða er til að benda kvikmyndaáhugamönnum og konum á að sjá myndir með Ms Lawrence. Hún er greinilega rétt að byrja og ekki er að sjá annað en að stúlkan sú sé á réttri hillu.

Directed by David O. Russell. With Bradley Cooper, Jennifer Lawrence, Robert De Niro, Jacki Weaver. After a stint in a mental institution, former teacher Pat Solitano moves back in with his parents and tries to reconcile with his ex-wife. Things get more challenging when Pat meets Tiffany, a myster...

Hobbitinn kom út í síðustu viku.  Í gengum tíðina höfum við ótal sinnum verið spurð um hvort við eigum ekki mynd um Hobb...
17/04/2013

Hobbitinn kom út í síðustu viku. Í gengum tíðina höfum við ótal sinnum verið spurð um hvort við eigum ekki mynd um Hobbitann. Höfum til skamms tíma bara getað boðið teiknimyndina frá 1980. Nú er loksins komin flott mynd úr smiðju Peter Jackson þess hins sama og gerði þríleikinn um Hringadróttinssögu um árið. Ein þeirra, sú þriðja, fékk 11 óskarsverðlaun og geri aðrir betur!
Hefur þú yndi af ævintýramyndum? Þá getur þú notið þess að horfa á Hobbitann, sem við bjóðum þér nú á DVD, Blue Ray og 3D. Tolkien bjó til ævintýraheim, sem hefur heillað almenning í áratugi og á eftir að gera um ókomin ár.

Directed by Peter Jackson. With Ian McKellen, Martin Freeman, Richard Armitage, Andy Serkis. A younger and more reluctant Hobbit, Bilbo Baggins, sets out on an "unexpected journey" to the Lonely Mountain with a spirited group of Dwarves to reclaim their stolen mountain home from a dragon named Smau...

Í síðustu viku komu út ágætar myndir á DVD.  Þar er helst að nefna The Impossible þar sem Naomi Watts og Ewan McGregor s...
08/04/2013

Í síðustu viku komu út ágætar myndir á DVD. Þar er helst að nefna The Impossible þar sem Naomi Watts og Ewan McGregor sýna afbragðsleik enda hún tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir sitt hlutverk en The Impossible fjallar náttúruhamfrarirnar á Tælandi á annann dag jóla árið 2004 þegar sjór gekk á land í kjölfar jarðskjálfta. Cloud Atlas er hins vegar stjörnum prýdd ævintýramynd. Skartar Tom Hanks, Hugh Grant, Halle Berry, Jim Broadbent og Susan Sarandon í aðalhlutverkum.

Directed by Juan Antonio Bayona. With Naomi Watts, Ewan McGregor, Tom Holland, Oaklee Pendergast. An account of a family caught, with tens of thousands of strangers, in the mayhem of one of the worst natural catastrophes of our time.

Address

Fákafen 9
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 14:00 - 12:00
Tuesday 14:00 - 12:00
Wednesday 14:00 - 12:00
Thursday 14:00 - 12:00
Friday 14:00 - 01:00
Saturday 14:00 - 01:00
Sunday 14:00 - 12:00

Telephone

568-7244

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VIDEOheimar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share