18/05/2026
Við viljum vekja athygli allra á þessari nýju upplýsingaveitu um bága stöðu námsgagna á Íslandi og hvetjum ykkur til að skoða málið.
Sjá tilvitnun:
"Námsgögn - Vanrækt grunnstoð
Í nær tvo áratugi hefur fjármagn til þróunar og kaupa á námsgögn rýrnað í íslenska skólakerfinu. Áhrifin eru mælanleg: námsárangur barna er að falla, munur á námsárangri milli sveitarfélaga eykst og félagslegur bakgrunnur er farinn að hafa meiri áhrif á hvernig börnum gengur í skóla og kennarar eyða sífellt meiri tíma í að búa til námsgögn — tíma sem ætti að fara í kennslu.
Íslenskir kennarar eru ekki lakari en kennarar annars staðar. Þeir fá bara minna til að vinna með."
Þrjár stoðir bera kerfið: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Námsgagnasjóður og Þróunarsjóður námsgagna. Grafið sýnir þróun heildarfjármagns þeirra allra á nafnvirði — og hvað þyrfti til að fylgja verðlagi, lágmarksviðmiðum Norðurlanda eða meðaltali þeirra.3