Alparnir

Alparnir Alparnir byggja á traustum vörumerkjum, þekkingu og góðri ráðgjöf til ævintýraþyrstra viðskiptavina

Alparnir er verslun sem byggir á traustum vörumerkjum, fagþekkingu og góðri ráðgjöf til viðskiptavina, hvort sem þeir eru að fara í fjöru eða upp til fjalla, útilegu með fjölskyldunni, snjóbretta og skíðaferðir.

Alparnir sameinast ÚtilífKæru AlpavinirVið hjá Ölpunum viljum þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína til okkar undanfa...
13/09/2023

Alparnir sameinast Útilíf

Kæru Alpavinir

Við hjá Ölpunum viljum þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína til okkar undanfarin ár kærlega fyrir komuna og fyrir sína þáttöku í hinu frábæra Alpa samfélagi. Við hlökkum mikið til að halda þessu ferðalagi áfram með Útilífi og bíðum spennt eftir að taka á móti ykkur í Útivistarverslun Útilífs í Skeifunni 11.

Í kjölfar sameiningar Alpanna við Útilíf hefur verslun Alpanna í Faxafeni 12 verið lokað frá og með deginum í dag, 13. september. Nú verður farið á fullt í að færa kjarnann úr vöruúrvali Alpanna yfir í útivistarverslun Útilífs í Skeifunni 11. Úrvalið af Salomon vörum mun einnig aukast töluvert í Smáralind og Kringlunni. Óhætt er að segja að eftir sameininguna muni skíðadeild Útilífs í Skeifunni 11 verða sú flottasta á landinu með einstakt vöruframboð, þekkingu og þjónustu.

Kær kveðja
Starfsfólk Alpanna

Lokað hjá okkur í dag laugardaginn 9. september 😊
09/09/2023

Lokað hjá okkur í dag laugardaginn 9. september 😊

LAGERHREINSUN20%-70% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM 50% VÖRUR 70% VÖRUR fróðleikur og fréttir 12/07/2022 Hvernig á að velja sér gönguskó! 12/07/2022 Hvernig á að velja sér hlaupavesti? 02/06/2022 Hvernig á að velja sér hlaupavesti? Nýjar vörur PULSAR TRAIL 27.990 kr. 22.392 kr. S/LA...

Í dag er síðasta dagur lagerhreinsunar Alpanna!Kíktu við og gerðu frábær kaup!Opið 11-16 í Faxafeni 12Sjáumst!www.alparn...
02/09/2023

Í dag er síðasta dagur lagerhreinsunar Alpanna!

Kíktu við og gerðu frábær kaup!

Opið 11-16 í Faxafeni 12

Sjáumst!

www.alparnir.is

Breytingavindar blása í Ölpunum ⛰️  Í september munu Alparnir sameinast Útilíf í stórglæsilegri verslun þeirra í Skeifun...
21/08/2023

Breytingavindar blása í Ölpunum ⛰️

Í september munu Alparnir sameinast Útilíf í stórglæsilegri verslun þeirra í Skeifunni 11.

Við ætlum að rýma til fyrir flutningunum með lagerhreinsun 21. ágúst til 2. september.

Ekki missa af þessu tækifæri til að gera frábær kaup.

SALOMON SUMAR 23 RONHILLHlaupafatnaður í 50 ár Previous Next skíði útivist utanvegahlaup fróðleikur og fréttir 12/07/2022 Hvernig á að velja sér gönguskó! 12/07/2022 Hvernig á að velja sér hlaupavesti? 02/06/2022 Hvernig á að velja sér hlaupavesti? Nýjar vörur SCOTT Full Tights...

Útilíf kaupir Alpana!Við gætum ekki verið spenntari fyrir að sameinast jafn rótgrónu og sterktu fyrirtæki og Útilífi. Sa...
14/08/2023

Útilíf kaupir Alpana!

Við gætum ekki verið spenntari fyrir að sameinast jafn rótgrónu og sterktu fyrirtæki og Útilífi. Sameiningin gengur í garð í September undir merkjum Útilífs.

Öll gjafabréf og inneignanótur í Alpana munu vera fullgild í Útilíf.

Við hlökkum til að ná lengra saman og að bjóða viðskiptavini Alpanna velkomna í Útilíf.

Enn eina ferðina er farið að gjósa og búið að opna gönguleið að gosinu (sjá mynd). Í þetta skiptið er gangan enginn skre...
12/07/2023

Enn eina ferðina er farið að gjósa og búið að opna gönguleið að gosinu (sjá mynd). Í þetta skiptið er gangan enginn skreppur, þar sem hún er um 9 kílómetrar hvora leið og tekur því í heild 6-8 tíma að ganga fram og til baka á svæði með stopulu símasambandi og nokkuð gróft undirlag alla leið.

Það er því mjög mikilvægt að vera í góðum skóm á leiðinni og hér getið þið fræðst um það hvernig er best að velja sér gönguskó:
https://alparnir.is/utivist/hvernig-a-ad-velja-ser-gongusko/

Einnig er mikilvægt að hafa nóg að drekka og einhverja næringu með sér og þar kemur vatnspoki og góður bakpoki sér mjög vel:
https://alparnir.is/voruflokkur/karlar/toskurogpokar-karlar/toskurogpokar-bakpokar/?orderby=price&paged=1

16/06/2023

Það verður lokað í verslun okkar á morgun 17. júní en vefverslunin okkar á www.alparnir.is er auðvitað alltaf opin 😊

Því miður eru vatnsheldar vörur einar þær vinsælustu á hverju Íslensku hlaupasumri 😅 En við vorum að taka úr kössunum þe...
14/06/2023

Því miður eru vatnsheldar vörur einar þær vinsælustu á hverju Íslensku hlaupasumri 😅

En við vorum að taka úr kössunum þessar frábæru vatnsheldu hlaupabuxur sem eru 2.5 laga með 20.000mm vatnsheldni og 20.000g/m2 öndun en vega samt einungis um 112 grömm!!! 🤯
Þá nær rennilásinn upp fyrir hné svo það er mjög auðvelt og fjótlegt að henda sér í eða úr þeim, jafnvel án þess að missa úr skref 🤔🤷‍♂️

SCOTT Pants M's RC Run WP black/yellow

Það styttist óðfluga í skemmtilegustu hlaupaveislu sumarsins! Gagnafhending er í fullum gangi hjá okkur í Faxafeni 12 í ...
07/06/2023

Það styttist óðfluga í skemmtilegustu hlaupaveislu sumarsins!

Gagnafhending er í fullum gangi hjá okkur í Faxafeni 12 í dag og á morgun.

Brautarkynning fer svo fram hjá okkur milli 18 og 18:30 í kvöld.

15% afsláttur af öllum vörum fyrir þáttakendur í Salomon Hengill Ultra!

Sjáumst!

MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ REYKJAVÍK
Kl. 12:00-18:00 Afhending gagna í ÖLPUNUM Faxafeni
Kl. 18:00-18:30 Brautarkynning í Ölpunum í streymi á Facebook

WEDNESDAY JUNE 7 REYKJAVÍK
12:00-18:00 Race bib pickup at the Salomon store Reykjavík (Alparnir, Faxafen 12, Reykjavík)
18:00-18:30 Course briefing at the Salomon store Reykjavík. Also streamed live on Facebook

Salomon Hengill Ultra Trail hlaupið fer fram í Hveragerði um næstu helgi!Alparnir hafa undanfarin ár verið stoltur styrk...
05/06/2023

Salomon Hengill Ultra Trail hlaupið fer fram í Hveragerði um næstu helgi!

Alparnir hafa undanfarin ár verið stoltur styrktaraðili þessa frábæra hlaups. Það sem okkur finnst skemmtilegast við hlaupið er það hversu fjölbreyttar vegalengdir og áskoranir eru í boði. Auk þess er Hveragerði frábær staður til að slaka á eftir hlaup með sundi og góðum mat!

Hægt er að skrá sig í allt frá 5 km upp í 160 km hlaup og er þetta því frábær vettvangur jafnt fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í utanvegahlaupum og þá sem fremst standa í íþróttinni.

Við viljum hvetja þá sem hefur lengi langað til að prófa að keppa í utanvegahlaupum að skrá sig í 5 eða 10 km hlaupið næstu helgi og taka þátt í þessari stórkostlegu hlaupaveislu!

Sjáumst á hlaupum!

Skemmtilegasta mótaröð á Íslandi

Okkur langar að mæla með þessu stórskemmtilega podcasti sem vinir okkar og ofurhlauparanir Þorsteinn Roy og Marteinn eru...
02/06/2023

Okkur langar að mæla með þessu stórskemmtilega podcasti sem vinir okkar og ofurhlauparanir Þorsteinn Roy og Marteinn eru farnir af stað með.

Virkilega skemmtilegt og fróðlegt fyrir alla sem eru áhugasamir um utanvegahlaup. Skemmir líka ekki fyrir að þeir félagar eru stórkostlegir aulabrandara meistarar!

Podcast · [object Object] · Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!

Styttist í veisluna og við getum ekki beðið!
31/05/2023

Styttist í veisluna og við getum ekki beðið!

Address

Faxafen 12
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Alparnir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Alparnir:

Share