Bókabúð Forlagsins

Bókabúð Forlagsins Bókabúð Forlagsins býður upp á mesta úrval íslenskra bóka á landinu frá öllum helstu útgefendum á sérstöku Forlagsverði.

Bókabúð Forlagsins er stærsta bókabúð á landinu og seljum við bækur frá Forlaginu og fjölmörgum öðrum íslenskum bókaútgefendum, stórum sem smáum. Við leggjum áherslu á að vera með breitt úrval bóka, bæði nýjustu titlana og eldri bækur sem eru komnar úr sölu víða annars staðar. Einnig er að finna afar metnaðarfulla kortadeild í búðinni.

Í Bókabúð Forlagsins er hátt til lofts og vítt til veggja, bækurnar fá nægilegt rými sem og viðskiptavinurinn. Það eru næg bílastæði og alltaf heitt á könnunni!

Húsið á Bjargbrúninni er bók mánaðarins í Bókabúð Forlagsins! Fyrri bækur í röðinni um Dr. Ruth eru svo líka á dúndur-ti...
11/06/2026

Húsið á Bjargbrúninni er bók mánaðarins í Bókabúð Forlagsins!

Fyrri bækur í röðinni um Dr. Ruth eru svo líka á dúndur-tilboði! Fullkominn sumarlestur ⭐

Það er sumarbókavika! Kjörinn tími til að grípa sér lesefni í fríið.Afsláttur á heimasíðu með kóðanum SUMAR ☀️Gleðilegan...
08/06/2026

Það er sumarbókavika! Kjörinn tími til að grípa sér lesefni í fríið.
Afsláttur á heimasíðu með kóðanum SUMAR ☀️
Gleðilegan sumarlestur!
Gildir 6. - 12. júní 2026

Nóbelskáldið í nýjum búningi🥇Tvö af þekktustu verkum Halldórs Laxness eru nú komin í nýrri og glæsilegri útgáfu.Salka Va...
28/05/2026

Nóbelskáldið í nýjum búningi🥇

Tvö af þekktustu verkum Halldórs Laxness eru nú komin í nýrri og glæsilegri útgáfu.
Salka Valka og Sjálfstætt fólk teljast meðal áhrifamestu verka íslenskra bókmennta — og eru nú fáanleg á ný í fallegum nýjum búningi ✨

Sögurnar lifa áfram ❤️

70% afsláttur af bókinni Bubbi Morthens – ferillinn í fjörutíu ár! 🎸📚Bubbi Morthens fagnar sjötugsafmæli sínu með stórtó...
21/05/2026

70% afsláttur af bókinni Bubbi Morthens – ferillinn í fjörutíu ár! 🎸📚

Bubbi Morthens fagnar sjötugsafmæli sínu með stórtónleikum í Laugardalshöll í júní — tilvalið tilefni til að rifja upp magnaðan feril eins áhrifamesta tónlistarmanns Íslands ✨

Í bókinni rekur tónlistarblaðamaðurinn Árni Matthíasson tónlistarsögu Bubba frá fyrstu skrefunum með kassagítarinn og yfir fjóra áratugi í íslensku tónlistarlífi.

Ísbjarnarblús og Geislavirkir breyttu íslenskri rokksögu — og síðan þá hefur Bubbi verið á allra vörum 🎶

Einstök bók á einstöku tilboði út júní — ekki missa af þessu!

Tröllabörnin er bók mánaðarins í Bókabúð Forlagsins! Glæný og ævintýralega krúttleg bók eftir Brian Pilkington 🌋
06/05/2026

Tröllabörnin er bók mánaðarins í Bókabúð Forlagsins!

Glæný og ævintýralega krúttleg bók eftir Brian Pilkington 🌋

24/04/2026

Það voru allir í sumarskapi í boðinu hjá Elizu Reid.

Bók mánaðarins í nóvember er Spegill þjóðar 🤩 Gunnar V. Andrésson er var einn áhrifamesti fréttaljósmyndari okkar í hálf...
01/11/2025

Bók mánaðarins í nóvember er Spegill þjóðar 🤩
Gunnar V. Andrésson er var einn áhrifamesti fréttaljósmyndari okkar í hálfa öld og margar mynda hans eru táknmyndir í þjóðarsögunni. Gunnar velur hér á annað hundrað minnisstæðustu mynda sinna og Sigmundur Ernir Rúnarsson skráir söguna á bakvið hverja þeirra – úr verður einstakt og áhrifamikið sjónarspil📸

Margar fréttaljósmynda Gunnars V. Andréssonar eru táknmyndir í sögu okkar – þegar við hugsum um tiltekna stórviðburði er það einatt einhver af myndum hans sem kemur upp í hugann.

Address

Fiskislóð 39
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 10:00 - 18:00
Tuesday 10:00 - 18:00
Wednesday 10:00 - 18:00
Thursday 10:00 - 18:00
Friday 10:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 16:00

Telephone

+3545755636

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bókabúð Forlagsins posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Bókabúð Forlagsins:

Shortcuts

Share

Category