Nexus

Nexus Nexus is the one-stop shopping destination for all things fantastic. Books, games, comic books, toys, DVD's, merchandising and more...
(1408)

Nexus er sérvöruverslun með myndasögur, spil, bækur, leikföng, búninga, merkjavarning, DVD/Blu ray diska ofl og hefur starfað í einni eða annarri mynd síðan 1992.

Fullt af nýjum myndasögum og meira á leiðinni
03/06/2026

Fullt af nýjum myndasögum og meira á leiðinni

24/05/2026

Hefðbundin opnun hjá okkur í dag og á morgun í Nexus Glæsibæ
11:30 - 22:00 ! :)

Föstudaginn 29. maí lokum við litlu búðinni okkar í Kringlunni.Nexus hefur verið rekin í einni eða annarri mynd frá árin...
21/05/2026

Föstudaginn 29. maí lokum við litlu búðinni okkar í Kringlunni.

Nexus hefur verið rekin í einni eða annarri mynd frá árinu 1992, fyrst við Hlemm, svo á Hverfisgötu, í Nóatúni og nú í Glæsibæ þar sem hjarta Nexus slær með spilasal og öflugu samfélagi.

Lokunin hefur engin áhrif á stórverslun okkar í Glæsibæ nema hvað við getum boðið upp á enn betri þjónustu og allur lagerinn okkar verður undir sama þaki. Einnig mun Guðmundur Pedro ekki þurfa að taka strætó upp í Kringlu lengur til að sinna sínu starfi.

Það verður engin rýmingarsala í Kringlunni því allar vörur flytjast yfir í Glæsibæinn, en við bendum viðskiptavinum á að nú eru síðustu forvöð að skipta Kringlu gjafakortum fyrir Nexus gjafabréf.

Takk fyrir viðskiptin í Kringlunni og megi þau verða meiri og betri í Glæsibæ.

——————

Friday the 29th of May we’ll be closing our little outpost in Kringlan shopping mall.

Nexus has been in business in one way or another since 1992, first by Hlemmur, then on Hverfisgata, in Nóatún, and now in Glæsibær where the Nexus heart beats strong with its gaming area and a fantastic community.

The Kringlan closure will have no effect on our flagship store in Glæsibær except enabling us to offer an even better service and keep all our stock under one roof.

There will be no clearance sale in Kringlan as all the products there will be transferred to Glæsibær but we want to point out to our customers that this is the last chance to exchange Kringlan gift cards for Nexus gift cards.

We’re grateful for all our interactions in Kringland. May they be further and greater in Glæsibær.

NEXUS Í KRINGLUNNI LOKAR ALVEG!NEXUS Í GLÆSIBÆ VERÐUR EINA (RISA)VERSLUNIN!Kringlan lokar föstudaginn 29. maí kl. 18:30Þ...
21/05/2026

NEXUS Í KRINGLUNNI LOKAR ALVEG!
NEXUS Í GLÆSIBÆ VERÐUR EINA (RISA)VERSLUNIN!

Kringlan lokar föstudaginn 29. maí kl. 18:30

Það verður EKKI rýmingarsala, engin útsala, enginn afsláttur.
Allar vörur fara í verslunina í Glæsibæ

Síðasti séns að nota gjafabréf Kringlunnar í Nexus.

Nexus þakkar kærlega fyrir viðskiptin í Kringlunni!

NEXUS IN KRINGLAN IS CLOSING FOR GOOD
NEXUS MEGASTORE IN GLÆSIBÆR WILL BE THE ONLY NEXUS
Closure in Kringlan on Friday May 29th at 6:30 PM

No close out sale, no discounts. All goods will move to the megastore in Glæsibær.
This is the last chance to use the Kringla gift cards in Nexus.

Nexus thanks you for your business in Kringlan.

FIFA World Cup límmiðarnir og límmiðabækurnar eru komnar í hús ⚽️
21/05/2026

FIFA World Cup límmiðarnir og límmiðabækurnar eru komnar í hús ⚽️

Það eru ennþá til ágætissæti á Nexusforsýninguna á The Mandalorian and Grogu í kvöld kl 20 í Sal 1 í Egilshöllinni!  Hlé...
20/05/2026

Það eru ennþá til ágætissæti á Nexusforsýninguna á The Mandalorian and Grogu í kvöld kl 20 í Sal 1 í Egilshöllinni! Hlélaus sýning og betri áhorfendur!

Ímyndaðu þér að þú sért á leið í vinnuna eins og venjulega en tíminn er ekki á sama takti. Þú mætir Neanderdalsmönnum og...
20/05/2026

Ímyndaðu þér að þú sért á leið í vinnuna eins og venjulega en tíminn er ekki á sama takti. Þú mætir Neanderdalsmönnum og miðaldariddurum úti á götu, risaeðlum í strætó og þegar þú mætir í vinnuna kannast enginn við þig því í tímalínu dagsins varstu í annarri vinnu. Þegar þú kemur heim borðarðu svo kvöldmat með útgáfu af sjálfri þér úr annarri vídd. Tilveran þín flakkar fyrirvaralaust milli erfiðustu augnablika lífs þíns, eða þá að þú upplifir langa ævi á nokkrum klukkustundum.
Engar ofurhetjur, bara venjulegt fólk á mjög óvenjulegum tíma.

Hvert blað/kafli er sjálfstæð saga og svo ólík í uppbyggingu og stíl að undirritaður hélt að ólíkir höfundar væru að verki en í raun er þetta draumaverkefni eins verðlaunateymis: Höfundarins Deniz Camp (20th Century Men, The Ultimates, Absolute Martian Manhunter), myndhöfundarins Eric Zawadzki (House of E, Heart Attacks) og litarans Jordie Bellaire (Birds of Prey, Batman, Nice House on the Lake).

Á topp 10 lista flestra miðla í lok 2025.
9.1 á Comic Book Round Up.
4 tilnefningar til Eisner verðlaunanna 2026

Ekki missa af þessu einstaka meistaraverki, sem nýtir möguleika myndasögunnar til hins ítrasta með sögum, sem enginn annar miðill gæti gert full skil.

Sambíóin Egilshöll sýna um helgina hina geysifallegu My Neighbor Totoro á stærsta kvikmyndatjaldi landsins! Meistaraverk...
16/05/2026

Sambíóin Egilshöll sýna um helgina hina geysifallegu My Neighbor Totoro á stærsta kvikmyndatjaldi landsins! Meistaraverk Hayao Miyazaki verður sýnd með japönsku og enskum texta í dag 16. maí og á morgun sunnudaginn 17. maí.

Miða má nálgast á vef Sambíóanna:
https://www.sambio.is/event/3375/my_neighbor_totoro_1988

16/05/2026

Það verður því miður ekki kennari í málningarkennslunni í dag en borðin verða á sínum stað fyrir þau sem hafa áhuga á því að mæta og mála :)

Address

Álfheimar 74, Glæsibær
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 11:30 - 22:00
Tuesday 11:30 - 22:00
Wednesday 11:30 - 22:00
Thursday 11:30 - 22:00
Friday 11:30 - 22:00
Saturday 11:30 - 22:00
Sunday 11:30 - 22:00

Telephone

+3545529011

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nexus posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Nexus:

Share