19/07/2016
Bókapistill að sumri 2016
Þessi síða líður fyrir það að það er stöðugur straumur í Bókabankann. Við höfum vart undan sannast sagna. Samt er það nú draumurinn að nota síðuna hér til að koma ýmsum bókfræðilegum upplýsingum á framfæri. Einnig að segja frá góðum bókum, gleymdum bókum já bara öllu sem að kjafti kemur þegar bækur og bókamenn eru annars vegar. Ég er stöðugt að skrifa ýmislegt smálegt hjá mér og stefni að því að setja reglulega pistla hér inn....
Einkennilegur þykir mér alltaf sá misskilningur að bókin sé á undanhaldi. Svo er alls ekki bókin er í sókn. Ungir sem aldnir lesa sem aldrei fyrr. Hópurinn er síst minni en fyrir 25 árum siðan. Gróskan er mikil og sala bóka m.a. fyrir jól aldrei meiri og það gleðilega er að salan dreifist einnig vel yfir árið. Fjöldi titla hefur aldrei verið meiri og það er svo sem ekki mælistika á gæði og sumt mætti alveg missa sig.
Lesbretti eru skemmtileg viðbót við flóruna; En þau eru afar takmörkuð og útgáfa bóka nánast bara í einfaldasta formi þ.e. bara texti. Þannig að það eru einkum svona afþreyingarbókmenntir sem fólk les á slíkum brettum. Þá spila inn í þessi lesbretti að þú mátt ekki framselja slíkar útgáfur og getur því ekki selt þær áfram eins og hægt er með enjulegar bækur.
Persónulega finnst mér mikill metnaður í bókalestri landsmanna og efnisval landans afar fjölbreytt. Íslenskar bókmenntir, heimsbókmenntir, ljóðabækur, fræðibækur, handbækur, teiknimyndasögur, barnabækur svo fátt eitt sé nefnt.
Auknum straumi ferðamanna fylgja líka aukin tækifæri sem fara þarf vel með en ekki ana áfram með dollaramerki í augunum eins og farið er að bera á í fjölbreyttri ferðaþjónustunni. Leiðsögumenn hérlendir eru duglegir að afla sér heimilda til að hafa frásagnir breiðari og meira skemmtilegar og ferðamennirnir sjálfir koma manni alltaf á óvart; þeir kaupa ekki bara bækur á erlendum tungum heldur eru þeir duglegir að kaupa íslenskar bækur og þá erum við ekki að tala um bækur um land og þjóð heldur bækur á íslensku um allt milli himins og jarðar.
Það er bara ánægjulegt að standa vaktina í Bókabankanum enda straumurinn nokkuð stöðugur þegar opið er. Munurinn á okkur og venjulegum bókabúðum er auðvitað sá að við eigum mikið til að eldri bókum sem þeir hafa ekki og reyndar einnig nýlegum. Sem kunnugt er Bókabankinn bara opinn um helgar og veitir ekki af að hafa aðra daga til að draga bækur í bú og undirbúa helgarnar. Ég segi að vísu að ég hafi fundið upp tveggja daga vinnuvikuna en þetta er víst ekki alveg svo einfalt!
Læt hér staðar numið að sinni og næsti pistill verður eitthvað fróðlegri og meira kjöt á beinunum bókfræðilega séð!