30/06/2025
Kæru kúnnar: burknar, mosar, barr og blóm.
Við þurfum því miður að tilkynnina ykkur að Mannyrkjustöð Reykjavíkur er óstarfhæf í Hljómskólagarðinum. Það virðist svo að einhver hefur tekið skiltin upp og farið með þau eitthvert. Ekki er vitað hver tók skiltin en þau hafa verið rifin upp á mildu sumarkvöldi. Tvö skilti fundust rétt hjá Þjóðminjasafni Reykjavíkur en önnur eru ófundin enn. Þau sem leitað er af eru: Rótun, sólun og vökvun. Við biðjumst velvirðigar á þessari takmörkuðu starfsemi og þeim óþægindum sem þessi truflun getur haft í för með sér.
Okkur í Mannyrkjustöðinni þætti vænt um að fá ábendingar ef einhver veit hvar skiltin eru að finna og um leið viljum við minna ykkur að drekka vel af vatni, og mælum við með 20 mínútna rótun og sólun fyrir alla á þessum árstíma.
Nú er blómatími og viljum við óska öllum blómum innilega til hamingju með árstímann og auðvitað njóta aðrar tegundir góðs af.
Mannyrkjustöðin vill einnig koma því á framfæri að ef skiltin finnast þá er hún tilbúin fyrir umpottun og leitar að nýju rými til að róta sig. Við þyggjum ábendingar um hvert Mannyrkjustöðin gæti farið.
Með nærandi kveðju,
Þjónustufulltrúar, Hrefna Lind og Búi Bjarmar