Spilavinir

Spilavinir Spil og púsluspil fyrir alla fjölskylduna. Líka vefverslun (sendum um allt land) og kaffihús!

Spilavinir er verslun sem sérhæfir sig í spilum og púsluspilum fyrir alla fjölskylduna. Verslunin var stofnuð árið 2007 og er með mikið úrval af spilum fyrir þau allra yngstu frá 1 1/2 árs og krakka á öllum aldri. Við leggjum mikla áheyrslu að eiga spil í fjölbreyttum verðflokkum sem geta hentað öllum. Við erum með mikið og gott úrval af borðspilum, partýspilum, skákvörum, spilastokkum, og púslusp

ilum. Við vitum að það getur verið erfitt að velja spil og leggjum okkur því fram við að aðstoða við að velja spil sem henta þér og spilahópnum þínum. Á vefversluninni getur þú líka fundið spil og lesið þér til um þau; verslað spilin og fengið sent til þín, sama hvar þú ert á landinu.

31/07/2026

Þorri sýnir 10 vinsælustu spil sumarsins og segir lítillega frá hverju þeirra, og hver eru í uppáhaldi hjá honum á listanum.

1. Flip 7
2. Hilo
3. Taco Köttur Geit Ostur Pizza
4. Five Crowns
5. Skipbo
6. Qwixx
7. Trio
8. Ekki séns!
9. Encore
10. Phase 10

Við fengum heimsókn frá Rás 2 og áttum skemmtilegt spjall um af hverju okkur finnst rigningin góð, trend í spilaheiminum...
24/07/2026

Við fengum heimsókn frá Rás 2 og áttum skemmtilegt spjall um af hverju okkur finnst rigningin góð, trend í spilaheiminum, og hvaða spil geta hentað fjölskyldum með tapsára einstaklinga. Takk fyrir okkur, Kristján 🙂

Pictoo er nýtt, lítið og einfalt spil fyrir 4ra ára og eldri þar sem við keppumst um að finna hlut á spilunum okkar. Min...
22/07/2026

Pictoo er nýtt, lítið og einfalt spil fyrir 4ra ára og eldri þar sem við keppumst um að finna hlut á spilunum okkar. Minnir svolítið á Tvennu, nema að hvert spil er lítil saga sem gaman er að skoða og uppgötva hlutina á myndinni.

Pictoo tekur ekki mikið pláss á borði, jafnvel svo að það væri hægt að spila það í flugvél (við myndum þá fækka spilum per leikmann úr 5 í 4).

🫘 Bohnanza er fullkomin blanda af spili sem ferðast vel og efnismeira spili eins og Catan eða Splendor. Við mælum eindre...
17/07/2026

🫘 Bohnanza er fullkomin blanda af spili sem ferðast vel og efnismeira spili eins og Catan eða Splendor. Við mælum eindregið með þessu skemmtilega samningaspili fyrir 3-5 leikmenn.

👤 12 ára og eldri
👥 3-5 leikmenn
⏰ 45 mín.

15/07/2026

Markmiðið í dnup er að losna við öll spilin sín af hendi. Þegar þú átt að gera spilar þú út setti, sem gæti látið einhvern þurfa að taka settið sitt aftur á hendi — en á hvolfi, með öðrum tölum! Einfalt, stutt og skemmtilegt.

Við prófuðum Catan on the Road áðan og það tékkar í öll Catan boxin (nema að blokkera aðra). Spilið er stutt og kallaði ...
10/07/2026

Við prófuðum Catan on the Road áðan og það tékkar í öll Catan boxin (nema að blokkera aðra). Spilið er stutt og kallaði strax á aðra spilun. Sem er gott.

07/07/2026

„Pick a Pen“ byrjar á að fyrsti leikmaðurinn kastar lituðu blýöntunum fimm — sem gegna líka hlutverki teninga — og velur svo einn þeirra til að lita á blaðið sitt. Svo veljið þið hin einn og einn blýant og litið á blaðið ykkar. Þegar blýantarnir eru búnir er þeim kastað aftur af þeim sem á að gera næst.

29/06/2026

🚨Spennandi nýtt spil í lok myndbandsins!

✈️ Ef það er ferðalag framundan, þá ættir þú að grípa eitt eða fleiri spennandi spil með þér. Hér eru nokkur sem ferðast vel og voru að koma í verslunina.

Maður skyldi ætla að hið geysivinsæla Lolly Dogs sé ekki hentugt til ferðalaga, en það er svo einfalt að taka það saman ...
24/06/2026

Maður skyldi ætla að hið geysivinsæla Lolly Dogs sé ekki hentugt til ferðalaga, en það er svo einfalt að taka það saman og stilla því upp — það þarf tiltölulega sléttan flöt fyrir teningana, svo er hægt að raða hvolpunum á hvernig flöt sem er. Við mælum með að pakka spilum saman til að spara pláss — jafnvel setja mörg í sama kassann. 🧳

Address

Suðurlandsbraut 48
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 11:00 - 18:00
Tuesday 11:00 - 18:00
Wednesday 11:00 - 18:00
Thursday 11:00 - 22:00
Friday 11:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Spilavinir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Spilavinir:

Shortcuts

Share