Hans Petersen

Hans Petersen Við elskum myndir :-)

Við þökkum kærlega fyrir okkur framköllunarþjónustuna okkar getur þú fundið í framtíðinni á https://fotomax.is/
14/06/2025

Við þökkum kærlega fyrir okkur framköllunarþjónustuna okkar getur þú fundið í framtíðinni á https://fotomax.is/

Nú eru að renna upp stór tímamót í sögu Hans Petersen. Eftir langa og dýrmæta vegferð höfum við tekið þá ákvörðun að hæt...
06/06/2025

Nú eru að renna upp stór tímamót í sögu Hans Petersen. Eftir langa og dýrmæta vegferð höfum við tekið þá ákvörðun að hætta verslunarrekstri á næstu dögum og snúa okkur að nýjum og óskyldum rekstri.

Það er bæði erfitt og tilfinningaþrungið að kveðja þennan kafla, sem hefur verið okkur svo mikilvægur. Við lítum til baka með stolti og djúpu þakklæti fyrir þann ómetanlega stuðning og traust sem þið hafið sýnt okkur í gegnum árin.

Viðskiptavinirnir – þið – hafið verið hjartað í rekstrinum okkar. Þið komuð, hlóguð, deilduð sögum ykkar, fenguð hugmyndir og fóruð út með minningar – og skilduð sannarlega eftir ykkar spor í sögu verslana okkar. Án ykkar hefði þessi saga aldrei orðið jafn falleg og hún varð.

Við kveðjum verslunarreksturinn með hlýju og virðingu, og horfum fram á veginn með von og spennu. Við þökkum af öllu hjarta fyrir samfylgdina, viðskiptin og minningarnar og óskum ykkur alls hins besta.

Takk fyrir allt.

Með djúpu þakklæti og virðingu
Hans Petersen

Opið í dag 30.12. á milli kl. 12.00 og 16.00 verslunin opnar svo aftur á hefðbundnum afgreiðslutíma 2. janúar 2025. Gleð...
30/12/2024

Opið í dag 30.12. á milli kl. 12.00 og 16.00 verslunin opnar svo aftur á hefðbundnum afgreiðslutíma 2. janúar 2025. Gleðilega hátíð og bestu þakkir fyrir viðskiptin á liðnum árum.

13/12/2022

Sendu okkur þína myndir í framköllun núna á www.hanspetersen.is
Gott úrval af römmum og kartonum í verslun okkar á Grensásvegi 12.

Við vorum loksins að fá sendingu af einnota myndavélum sem er erfitt að nálgast þessa dagana. Tilvalið fyrir komandi hel...
24/07/2022

Við vorum loksins að fá sendingu af einnota myndavélum sem er erfitt að nálgast þessa dagana. Tilvalið fyrir komandi helgi hægt að nálgast í verslun og á heimasíðunni okkar. Hérna er beinn tengill.

ILFORD ILFOCOLOR Rapid einnota myndavélin er með 27 myndum og er með 400 ASA ljósnæmri filmu sem hentar við hvaða aðstæður sem er. Innbyggt flass hjálpar til við hafa þessa myndavél tiltæka í hvaða aðstæðum sem er.

Óskum landsmönnum öllum gleðilegra jóla árs og friðar.  Þökkum viðskiptin fyrr og siðar.  Njótum hátíðanna og varðveitum...
24/12/2021

Óskum landsmönnum öllum gleðilegra jóla árs og friðar. Þökkum viðskiptin fyrr og siðar. Njótum hátíðanna og varðveitum minningar þeirra.

Address

Faxafen 10
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hans Petersen posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hans Petersen:

Share