12/02/2026
Næstur við væsinn í Veiðiflugum er Birkir Mar Harðarson, sem hefur komið víða við. Hann snjall veiðimaður, fluguhnýtari, leiðsögumaður og annar þáttastjórnandi hlaðvarpsins Hylurinn.
Birkir hefur verið viðloðinn fluguveiði nær alla ævi og starfað við leiðsögn víða um land, bæði í lax- og silungsveiði. Hann hefur meðal annars leiðsagt í Norðurá og Hofsá, auk þess að þekkja vel til á sjóbirtingsslóðum sunnanlands, svo sem í Tungufljóti, Vatnamótum og Geirlandsá. Undanfarna vetur hefur hann einnig starfað við leiðsögn í Argentínu – og þaðan sótt innblástur í hnýtingarnar.
Á laugardag verður sjóbirtingsveiðin í brennidepli. Birkir mun hnýta straumflugur fyrir birting, sínar eftirlætisflugur sem hafa víða sannað sig. Hér gefst gott tækifæri til að fá ferskar hugmyndir og sjá hvernig áhugaverðar flugur verða til frá grunni.
Sjáumst í Veiðiflugum laugardaginn 14. febrúar, milli kl. 12–15 🎣