22/01/2026
King of the North.
Trackman ásamt TaylorMade standa fyrir skemmtilega golfhermamótaröð í vetur þar sem spiluð verða þrjú mót á þrem mismunandi völlum.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum en í vinning er ferð til Bretlands, Qi4D driver frá Taylormade, golfhringur á The Grove og þátttökuréttur á úrslitamótinu í London.
Fyrsta mótið verður leikið á Lofoten Links dagana 23. janúar til 11. febrúar. Næst verður það Adere Manor dagana 12. febrúar til 5. Mars og loks er lokamótið á Cabot Cliffs 6. mars til 25. mars.
Reglur
- Það kostar ekkert að taka þátt og hægt er að spila tvisvar í hverju móti.
- Keppt er í höggleik með forgjöf
- Notast er við Auto-Fixed pútt (1 pútt innan 3m, 2 pútt 3-20m og 2 pútt yfir 20m)
Endilega spreyttu þig á þessu og sjáðu hvar þú stendur miðað við aðra á Norðurlöndunum