Bokalind

Bokalind Bókalind er antikbókabúð. Við seljun góðar notaðar bækur. Frí heimsending á stór höfuðbargarsvæðinu.

PÍTSUR MEIRA EN 50 LJÚFFENGAR UPPSKRIFTIhttps://bokalind.is/vara/pitsur-meira-en-50-ljuffengar-uppskriftir/Hér er að fin...
27/07/2026

PÍTSUR MEIRA EN 50 LJÚFFENGAR UPPSKRIFTI
https://bokalind.is/vara/pitsur-meira-en-50-ljuffengar-uppskriftir/

Hér er að finna meira en 50 uppskriftir að gómsætum pítsum, allt frá hefðbundnum ítölskum pítsum yfir í frumlegri útfærslur frá öllum heimshornum. Uppskriftin að deiginu er einföld og fljótgerð, deigið er blandað og hnoðað á einungis nokkrum mínútum. Með bókinni verður pítsugerðin skemmtileg og öll fjölskyldan getur tekið þátt í að hnoða og leggja áleggið á þar til ljúffeng og nærringarrík máltíð er komin á borðið. (Heimild: Bókatíðindi).

Ástand: gott bæði innsíður og kápa

Pítsur meira en 50 auðveldar og ljúffengar uppskriftir
kr.900

STÓRA GARÐABÓKINAlfræði garðeigandanshttps://bokalind.is/vara/stora-gardabokin/Stóra garðabókin hefur að fyrirmynd The R...
27/06/2026

STÓRA GARÐABÓKIN
Alfræði garðeigandans
https://bokalind.is/vara/stora-gardabokin/

Stóra garðabókin hefur að fyrirmynd The RHS Encyclopedia of gardening sem kom upphaflega út í London 1992.

Á bakhlið segir: „…Stóra garðabókin á erindi til allra þeirra sem vilja rækta garðinn sinn. Hún er prýdd hartnær 3000 litmyndum sem er ætlað að kveikja nýjar hugmyndir og vekja athygli á þeim fjölbreyttu möguleikum sem felast í garðrækt hér á landi. Í sérstökum myndaröðum er lögð áhersla á að sýna rétt handbrögð og kenna áhugamönnum einföld en nauðsynleg tækniatriði.

Ágúst H. Bjarnason grasafræðingur ritstýrir verkinu og hefur hann fengið til liðs við sig þrjátíu sérfræðinga sem leggja bókinni til efni. Hér er að finna dýrmætan fróðleik sem tekur mið af langri reynslu og gamalli hefð í garðyrkju. …“

Ástand: gott

Stóra Garðabókin Alfræði garðeigandans
kr.2.000

REYKJAVÍK SÖGUSTAÐUR VIÐ SUND I-IV BINDI Í ÖSKJUhttps://bokalind.is/vara/reykjavik-sogustadur-vid-sund-i-iv-bindi-i-oskj...
24/04/2026

REYKJAVÍK SÖGUSTAÐUR VIÐ SUND I-IV BINDI Í ÖSKJU
https://bokalind.is/vara/reykjavik-sogustadur-vid-sund-i-iv-bindi-i-oskju/

Rakin er saga Reykjavíkur og dregin fram sérkenni í markvissum og efnisríkum texta og auk þess í hátt á þriðja þúsund gömlum og nýjum myndum, málverkum, teikningum, kortum og uppdráttum. (Heimild: Bakhlið 1. bindis)

bindi: A-G Alþýðlegt fræðirit um sögu og sérkenni höfuðborgarinnar
bindi: R-Ö Saga og sérkenni höfuðborgarinnar í máli og myndum
bindi: H-P Saga og sérkenni höfuðborgarinnar í máli og myndum
bindi: Lykilbók: Annáll Reykjavíkur frá upphafi til vorra daga; víðmynd af fjallahring Reykjavíkur þar sem örnefni eru tilgreind; gömul og ný Reykjavíkurkort og loftmyndir; örnefnakort alls borgarlandsins; staðanafna-, atriðisorða- og heimildarskrár; kafli sem sýnir fegurð gamalla húsa í borginni.
Ástand: mjög gott bæði innsíður og kápa

Reykjavík sögustaður við Sund - Páll Líndal og Einar S Arnalds
kr.4.000

Reykjavík sögustaður við Sund I-IV bindi í öskju. Rakin er saga Reykjavíkur og dregin fram sérkenni í markvissum og efnisríkum texta og auk þess í hátt ...

ÞYKKSKINNA – SUNNLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR OG ÞÆTTIRhttps://bokalind.is/vara/thykkskinna-sunnlenskar-thjodsogur-og-thaettir-i-ii...
24/04/2026

ÞYKKSKINNA – SUNNLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR OG ÞÆTTIR
https://bokalind.is/vara/thykkskinna-sunnlenskar-thjodsogur-og-thaettir-i-iii-bindi/

Þykkskinna er úrval sagnaþátta og ljósmynda Helga Hannessonar frá Sumarliðabæ (1896 – 1989). Hér er sagt frá kunnum héraðsdraugum Rangæinga eins og Kotsmóra og Gunnu Ívars, kynntir til sögunnar hólbúar og huldar vættir auk þess sem fjöldi Rangæinga fyrri tíðar er leiddur fram á sjónarsviðið. Allar þessar persónur, menn og vættir, verða lesandanum ljóslifandi undir meitluðu orðfæri og frábærum frásagnarstíl Helga. Í bókinni eru um 170 ljósmyndir sem Helgi tók um og fyrir miðja 20. öld og varpa einstöku ljósi á horfinn aldarhátt. Í ljósmyndun var Helgi á undan sinni samtíð þar sem hann gerði sér far um að mynda hvunndagsleikann í mannlífi Rangæinga. Þáttum og myndum er hér fléttað saman auk þess sem mikið af stökum myndum prýða bókina milli þátta. Formála ritar Þórður Tómasson safnvörður í Skógum. (Heimild: Bókatíðindi)

Þykkskinna I. bindi útgáfuár 2003

Í bókinni eru um 170 ljósmyndir Helga frá fjóðra og fimmta áratug 20. aldar. Myndir sem varpa einstöku ljósi á herfinn aldarhátt.
Þykkskinna II. útgáfuár 2005

Bókina prýða einstakar ljósmyndir úr safni Helga en hann var á kaupfélagsstjóraárum sínum á Rauðalæk.
Þykkskinna III. útgáfuár 2006

Í æviminningum sínum bregður Helgi upp ljóslifandi lýsingum af baráttu fátækra Holtamanna við bráðapest, barnadauða og matarskort.
Ástand: bæði innsíður, harðakápa og lausa kápan góð. Ekki nafnamerkt né krot er í bókunum

Þykkskinna Sunnlenskar þjóðsögur og hættir
kr.4.200

Þykkskinna - sunnlenskar þjóðsögur og þættir. Þykkskinna er úrval sagnaþátta og ljósmynda Helga Hannessonar frá Sumarliðabæ (1896 - 1989). Hér ...

Nostradamus og spádómarnir um Íslandhttps://bokalind.is/vara/nostradamus-og-spadomarnir-um-island/Bókin hefur að geyma ý...
13/04/2026

Nostradamus og spádómarnir um Ísland
https://bokalind.is/vara/nostradamus-og-spadomarnir-um-island/

Bókin hefur að geyma ýmsa spádóma er varða Ísland og framtíðarhlutverk íslensku þjóðarinnar, þar á meðal spádóma eins mesta spámanns allra tíma Nostrardamus (1503-1566).

Spádómar Nostradamusar hafa vakið furðu og eiga vísindamenn erfitt með að útskýra framsýni hans. Skömmu eftir útkomu spádómanna fóru ýmsir þeirra að rætast og í dag er talið að meira en helmingur þeirra hafi komoið fram. Spádómar hans varðandi nánustu framtíð eru ekki síðiur nákvæmir. Þeir benda á gjörbreytta tíma fyrir mannkynið. Í þeim hildarleik gegnir Ísland mikilvægu hlutverki og þaðan kemur merkur leiðtogi.

Hér er í fyrsta sinn birtur frumtexti Nostradamusar, ásamt orðskýringum, þannig að lesandinn hefur nú forsendur til að túlka inntak spádómanna upp á eigin spýtur. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Nostradamus og spádómarnir um Ísland er 3 hlutum sem hver um sig hefur undirkafla, þeir eru:

1 hluti – Véfréttir
Urður, Verðandi og skuld
Spádómar um Jesú Krists
Spádómarnir um Ísland
Michel Nostradamus og Aldirnar
II hluti – Veröld sem var
Þrautir og þrætur þriggja alda
Franska byltingin
Napóleon Bónaparte
Heimsstyrjöldin fyrri
Franco og spænska borgarastyrjöldin
Mussolini og ítalski fasisminn
Adolf Hi**er og Þriðja rikið
Upphaf seinni heimsstyrjaldar
Fall Frakklands
Sigur bandamanna
Frá Lenin til Gorbatsjovs
Vesturlönd og heimsmálin
Þættir úr sögu Ísraelsríkis
Íslam og heimur múhameðstrúarmanna
III hluti – Sýnir úr framtíðinni
Dregur til tíðinda
And-Kristur-666
Uppgangur múhameðstrúarmanna
Innrás Kínverja
Ógnir og tákn á himni
Síðustu dagar kirkjunnar
Helstríð Evrópu
Evrópa á sigurbraut
Leiðtoginn frá Íslandi
Dögun nýrra aldar
Ástand: gott, innsíður góðar

Nostradamu og spádómarnir um Ísland - Guðmundur Sigurfreyr Jónasson
kr.1.400

Bókin hefur að geyma ýmsa spádóma er varða Ísland og framtíðarhlutverk íslensku þjóðarinnar, þar á meðal spádóma eins mesta spámanns allra tíma ...

Flugukast norræna aðferðinhttps://bokalind.is/vara/flugukast-norraena-adferdin/Höfundur er listamaður í að handleika flu...
13/04/2026

Flugukast norræna aðferðin
https://bokalind.is/vara/flugukast-norraena-adferdin/

Höfundur er listamaður í að handleika flugustöng og dugmikill kennari. Í þessari bók eys hann úr brunni visku sinnar um kúnstina að kasta flugu eins og best verður á kosið. Í áranna rás hefur hann ferðast vítt um heim og bleytt flugur sínar hvar sem laxar eða sjóbirtingar bæra ugga. Reynsla hans og kunnátta í flugukasti og veiðum er víðkunn, einnig hér á landi. Um 400 ljósmyndir og teikningar prýða bókina – margar myndanna eru teknar á Íslandi. (Heimild: Bókatíðindi)

Bókin er skipt niður í 11 kafla og undirkafla, þeir eru:

Eðlifræði flugukastsins
Val á búnaði
Baklína, rennilína, kastklumpar og taumar
Yfirhandarkast með einhendu
Norrænt speykast með einhendu
Einfalt og tvöfalt tog
Kastað með tvíhendu
Háþróuð kastaðferð með tvíhendu
viðhald fluguveiðibúnaðar
Traustir hnútar
Æfingin skapar meistarann
Ástand: gott innsíður, kápa þreytt

Flugukast norræna aðferðin - höfundur Henrik Mortensen
kr.2.400

Flugukast norræna aðferðin. Höfundur er listamaður í að handleika flugustöng og dugmikill kennari. Í þessari bók eys hann úr brunni visku sinnar um ...

Sigur í samkeppnihttps://bokalind.is/vara/sigur-i-samkeppni-utgafa-1993/Bók um markaðsmál með dæmisögum úr íslensku atvi...
13/04/2026

Sigur í samkeppni
https://bokalind.is/vara/sigur-i-samkeppni-utgafa-1993/

Bók um markaðsmál með dæmisögum úr íslensku atvinnulífi
Aðgengileg grunnbók um markaðsmál, rituð sérstaklega með hliðsjón af íslenskum aðstæðum. Bókin er hugsuð fyrir þá sem vilja afla sér undirstöðuþekkingar í markaðsfræði og geymir fjölmargar dæmisögur af íslenskum fyrirtækjum.

Höfundur: Bogi Þór Siguroddsson er rekstrarhagfræðingur með MBA-próf frá Rutgers, Graduate School of Management í New Jersey í Bandaríkjunum.

Bókin Sigur í samkeppni er skipt niður í 4 hluta með samtals 17 köflun þeir eru:

Fyrsti hluti: Um faglegt markaðsstarf

Mikilvægi faglegs markaðsstarfs í síbreytilegu samfélagi
Afstaða fyrirtækja til markaðarins
Annar hluti: Tól og tæki markaðsmannsins

Söluráðar fyrirtækja
Vöruþróun
Líftími vöru
Vara, þjónusta, hugmyndir – hvað á að selja og hvernig
Verðlagning – Verðstefna
Auglýsingar og annað kynningarstarf
Sölustaðir og dreifileiðir
Þriðji hluti: Hlutverkin á markaðinum

Markaðsumhverfi fyrirtækja
Samkeppnisgreining
Markaðshlutun: Mismundandi þarfir, mismunandi lausnir
Kaupvenjur neytenda
Kaupvenjur á fyrirtækjamarkaði
Fjórði hluti: Áætlanagerð og stefnumótun markaðsstarfsins

Markaðsrannsóknir
Ímynd fyrirtækja
Markaðsáætlanir – Forsenda velgengni til langs tíma

Ástand: Gott
Kr. 1.500

Sigur í samkeppni. Bók um markaðsmál með dæmisögum úr íslensku atvinnulífi. Aðgengileg grunnbók um markaðsmál, rituð sérstaklega með hliðsjón af íslenskum aðstæðum. Bókin er hugsuð fyrir þá sem vilja afla sér undirstöðuþekkingar í markaðsfræði og geymir fjölmargar...

FJÖLFRÆÐIBÓKIN UM NUDDhttps://bokalind.is/vara/fjolfraedibokin-um-nudd/Létt og einföld leiðsögn um allt sem varðar nudd ...
19/03/2026

FJÖLFRÆÐIBÓKIN UM NUDD
https://bokalind.is/vara/fjolfraedibokin-um-nudd/

Létt og einföld leiðsögn um allt sem varðar nudd og nuddtækni
Nudd er slakandi og róandi og það læknar þrautir og endurnærir þreytta vöðva. Skýrar og auðskildar leiðbeiningar ásamt miklum fjölda ljósmynda gera öllum kleift að notfæra sér kosti þeirra mörgu nuddaðferða sem hér lýst.

Baknudd, fótanudd, bandanudd, andlitsnudd, ungbarnanudd, þrýstinudd, slökunarnudd sjúkranudd og fegrunarnudd. (Heimild: bakhlið bókarinnar)

Bókin Fjölfræðibókin um Nudd er skipt niður í 8 kafla, þeir eru:

Undirbúningur
Undirstöðuatriði
Ilmlækningar
Hvernig á að nudda
Bakiði
Fóturinn
Fótleggurinn
Höndin
Handleggurinn
Kviðurinn
Bringan og hálsinn
Andlitið
Höfuðið
Á tíu mínútum
Sjálfsnudd
Um allan líkamann
Andlit og háls
Börn og ungbörn
Meðganga og fæðing
Ungbarnanudd
Nudd fyrir börn
Þrýstinudd
Shíatsú
Svæðameðferð
Nudd til lækningar
Græðingamáttur nuddsins
Bygging líkamans og starfsemi
Atriðisorð
Ástand: gott

Nudd fjölfræðibók | Clare Maxwell-Hudson
kr.1.800

Fjölfræðibókin um Nudd. Létt og einföld leiðsögn um allt sem varðar nudd og nuddtækni. Nudd er slakandi og róandi og það læknar þrautir og endurnærir ...

STÓRA HJÁTRÚARBÓKINhttps://bokalind.is/vara/stora-hjatruarbokin-uppflettirit-um-hjatru-islendinga/Stóra hjátrúarbókin er...
19/03/2026

STÓRA HJÁTRÚARBÓKIN
https://bokalind.is/vara/stora-hjatruarbokin-uppflettirit-um-hjatru-islendinga/
Stóra hjátrúarbókin er að gengilegt uppflettirit um margvíslega hjátrú landsmanna fyrr og nú. Boðar það ógæfu ef svartur köttur gengur í veg fyrir þig? Af hverju er talan þrettán svona varasöm? Er hættulegt að ganga undir stiga? Hvers vegna er sjö ára ógæfa sögð fylgja því að brjóta spegil? Svorin eru í Stóru hjátrúarbókinni.

Bókin Stóra hjátrúarbókin er raðað eftir starfsrófsröð.

Ástand: gott bæði innsíður og kápa.

Kr. 1.800

Stóra hjátrúarbókin er að gengilegt uppflettirit um margvíslega hjátrú landsmanna fyrr og nú. Boðar það ógæfu ef svartur köttur gengur í veg fyrir þig? ...

STOFUBLÓM OG INNIGRÓÐURhttps://bokalind.is/vara/stofublom-og-innigrodur-john-brookes/Allt um stofublóm, inngróður og bló...
14/03/2026

STOFUBLÓM OG INNIGRÓÐUR
https://bokalind.is/vara/stofublom-og-innigrodur-john-brookes/

Allt um stofublóm, inngróður og blómaskála
Stofublóm og inngróður er ómissandi bók fyrir blómaunnendur – bók sem segir þér allt um blómin þín, umhirðu þeirra og hvernig þau fá best notið sín. Litmyndir eru af nær 150 algengum pottaplöntum og þörfum hverrar og einnar lýst nákvæmlega. Í sérstökum köflum er fjallað um umönnun plantna, birtuþörf, hitastig, loftraka, áburðargjöf, potta, og pottamold, umpottun, fjölgun og gróðursetningu, vatnsræktun, sjúkdóma og óþrif og margt fleira, með hjálp fjölmargra skýringarmynda. Í bókinni er einnig ítarleg umfjöllun um afskorin blóm og þurrkun blóma og þurrblómaskreytingar, ríkulega myndskreytt. Í kaflanum Leiðsögn um húsið er að finna hugmyndir um val á blómum og gróðri í hvert herbergi hússins fyrir þig. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Stofublóm og innigróður eru 7 kaflar,þeir eru:

Innigróður
Uppröðun blóma
Uppröðun afskorinna blóma
Þurrblómaskreytingar
Leiðisögn um húsið
Plöntuleiðarvísir
Umhirða plantna
Viðbót
Orðalisti
Plöntuheiti
Ástand: gott

Stofublóm og innigróður - John Brookes - Iðunn 1987
kr.1.500

Stofublóm og innigróður. Allt um stofublóm, inngróður og blómaskálaStofublóm og inngróður er ómissandi bók fyrir blómaunnendur ...

Address

Birkirteigur 4
Keflavík
230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bokalind posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Bokalind:

Share

Category