Brew.is

Brew.is Brew.is er verslun með hráefni og græjur til bjórgerðar Brew.is er eina verslunin á Íslandi sem selur allt sem þú þarft til að gera bjór úr korni.

Skráning í bruggkeppni fágunar er í fullum gangi. Frábært tækifæri til að fá uppbyggileg comment á bjórinn þinn, mögulei...
19/04/2026

Skráning í bruggkeppni fágunar er í fullum gangi. Frábært tækifæri til að fá uppbyggileg comment á bjórinn þinn, möguleiki á flottum vinningum og svo er úrslitakvöldið skemmtilegur viðburður þar sem bruggarar hittast, drekka bjór og hafa gaman. Mæli með!

Ég var að bæta við nýrri uppskrift á síðuna - Eiríkur Rauði. Amerískt rauðöl sem er með skemmtilegan maltkeim, fallega r...
09/04/2026

Ég var að bæta við nýrri uppskrift á síðuna - Eiríkur Rauði. Amerískt rauðöl sem er með skemmtilegan maltkeim, fallega rautt á litinn og með yndislegri lykt og bragði af Centennial humlum. Tilvalið að prófa! Opið 13-18 í dag.

Eiríkur Rauði er ljúf Amerískt rauðöl með fallegum djúpum rauðum lit. Stats ABV : 5.2% OG : 1.052 IBU : 28 EBC : 25-30 Korn 3.35 Maris Otter 0.48 Munich I 0.28 CaraRed 0.16 Caramunich III 0.03 Rist…

Það er opið í brew.is í dag. Það er svo lokað alla næstu viku, ég ætla að skella mér í smá frí með fjölskylduna.Nýjung í...
02/01/2026

Það er opið í brew.is í dag. Það er svo lokað alla næstu viku, ég ætla að skella mér í smá frí með fjölskylduna.

Nýjung í brew.is eru FWK - Fresh Wort Kit frá Kegland í Evrópu. FWK eru 15 lítrar af tilbúnum hágæða virti sem er tilbúinn fyrir gerjun. Þú getur þynnt virtinn í 20-25 lítra til þess að búa til bjór eftir þínu höfði, bætir bara við geri og etv þurrhumlun. Frábært þegar þú hefur ekki tíma til að brugga eða átt ekki suðugræjur en vilt samt gera hágæða bjór.
https://www.brew.is/c/Fresh-Wort-Kit

Það er opið í dag, Þorláksmessu í Brew.is! Opið 13-18:00 og svo skelli ég í lás og fer í jólafrí!Áttu eftir að græja jól...
23/12/2025

Það er opið í dag, Þorláksmessu í Brew.is! Opið 13-18:00 og svo skelli ég í lás og fer í jólafrí!

Áttu eftir að græja jólagjafir?
Hvernig væri að gefa pabba/tengdapabba góðan kjöthitamæli í grillið, bruggið ofl?
https://www.brew.is/p/IHT1P-endurhladanlegur-eldsnoggur-hitamaelir

Nýtt frá kegland, hlaðanleg spreypumpa sem er líka hægt að nota til að þrífa kegerator línur með ball lock tengjum?
https://www.brew.is/p/power-sprayer

Einn af viðskiptavinum mínum er að rækta býflugur og kom með nokkrar krukkur af alíslensku hunangi frá Suðurlandi. Geggjað með ostunum yfir jólin :)

Perfect for spraying down brewing equipment with dissolved cleaners or sanitisers. Ideal for coupling with KL42871 Multi-Post for Power Sprayer to turn the sprayer into a pressurised line cleaning …

04/12/2025

Það verður lokað í brew.is á morgun, föstudag. Opið í dag til 18.

Ég var að fá nokkra nýja og spennandi gerla á lager, þám. 3 nýja kveik og einn glænýjan frá Lallemand:Lallemand House er...
08/11/2025

Ég var að fá nokkra nýja og spennandi gerla á lager, þám. 3 nýja kveik og einn glænýjan frá Lallemand:

Lallemand House er ger frá Escarpment sem er sérstaklega hraðvirkt og gott í allskonar clean gerjanir, t.d. IPA, Blonde, Stouta og fleira. Ég smakkaði frábæran IPA með því til dæmis þegar Lallemand voru að kynna gerið í Munchen í september.

Svo eru það 3 nýjir Kveik gerlar frá Kveik Yeastery, Stalljen, Eitrheim og Ebbegarden.

https://www.brew.is/p?sort=id-desc

Eftir allnokkrar yfirgefnar útgáfur er ég loksins búinn að skrifa nýja heimasíðu brew.is. Þessi síða er glæný og skrifuð...
11/10/2025

Eftir allnokkrar yfirgefnar útgáfur er ég loksins búinn að skrifa nýja heimasíðu brew.is. Þessi síða er glæný og skrifuð alveg frá grunni með brew.is í huga og ætti að vera töluverð uppfærsla yfir gömlu síðuna.

Nýja síðan virkar með aðgangsupplýsingunum af gömlu síðunni, og á síðunni getur þú flett upp gömlum pöntunum og einnig gömlum uppskriftum.

Á nýju síðunni eru nokkrir nýjir fídusar:
* Hjálpar flipi þar sem ég hef skrifað um nokkra hluti sem hafa vafist fyrir nýjum og reyndum bruggurum
* Reiknivélar til að t.d. leiðrétta ljósbrotsmæli (refractometer), áfengis reiknivél og Sykurlags reiknivél (sugar wash)
* Dark/Light mode
* Síðan ætti að virka töluvert betur á símum og minni skjáum

Ég er með allnokkra hluti sem stendur til að bæta við síðuna og munu detta inn á næstu vikum og mánuðum. Síðan gæti innihaldið einhverja galla eða mistök. Endilega hafðu samband hér í commentum, emaili eða bara eitthvað ef þú rekst á eitthvað sem mætti fara betur eða vantar á síðuna.

12/09/2025

Ég ætla að skottast til Þýskalands á vörusýningu í næstu viku og því verður lokað næsta þriðjudag og miðvikudag. Opið í dag, föstudag 13-18!

Ég var að setja nýja og uppfærða uppskriftavél í loftið. Nokkrir nýjir sjáanlegir fídusar og margir bakvið tjöldin. Endi...
05/09/2025

Ég var að setja nýja og uppfærða uppskriftavél í loftið. Nokkrir nýjir sjáanlegir fídusar og margir bakvið tjöldin. Endilega látið mig vita ef þið rekist á einhverja vankanta á vélinni, þeir eru örugglega einhverjir :)

Þú getur núna pantað fleiri en eina uppskrift í einu og valið hvort þú viljir hafa uppskriftina malaða. Einnig reiknar hún grunn upplýsingar um gravity og áfengismagn.

https://uppskriftir.brew.is/uppskrift-2RGN

Boiron mango púrra a tilboði, 1500kr meðan birgðir endast - Vegna þess að hún rennur út í ágúst.Venjulegt verð 2600kr.
26/06/2025

Boiron mango púrra a tilboði, 1500kr meðan birgðir endast - Vegna þess að hún rennur út í ágúst.

Venjulegt verð 2600kr.

19/06/2025

Opið í dag, fimmtudag!
Lokað á morgun föstudag, ég ætla að skella mér til eyja á Bjórhátíð The Brothers Brewery

Address

Askalind 3
Kópavogur
201

Opening Hours

Tuesday 13:00 - 18:00
Wednesday 13:00 - 18:00
Thursday 13:00 - 18:00
Friday 13:00 - 18:00

Telephone

+3547687770

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brew.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Brew.is:

Share

Category