21/12/2022
Jólalegir ferfætlingar.
Endurnýtt og styrkir gott málefni!
Væri ekki gaman að dressa uppáhalds fjórfætlinginn um jólin?
Já, eða bara aðra daga?
Við erum með jólaklúta en einnig klúta sem ganga allt árið (sumir eru „tvöfaldir”, hægt að snúa við og fá annað munstur).
Þessi klæði (klútar, þverslaufur, bindi) eru úr endurnýttu efni, að sjálfsögðu allt þvegið og margstraujað í ferlinu.
Þetta er allt handunnið af okkur fjölskyldunni.
Við erum að þróa fleiri vörur, meira fyrir ketti, jafnvel leikföng og hundapokageymir sem smellist á handfang ólarinnar.
Allur ágóði af sölu klæðanna rennur til Dýrfinnu/Hundasveitarinnar og Kattholts.
Hér má sjá Myrru (labrador með L-stærð) og Matta (Jack Russell með M-stærð).
Endilega kíkið á úrvalið á pets.is
Gleðileg sprengjakrúttskala-gæludýrajól!
(Og já, hárrúllan svínvirkar, gott að rúlla fyrir jólaboðið!)