Lopalind

Lopalind Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Lopalind, Retail Company, Hvammstangi.

Byrjenda námskeið í Amigurumi hekli.Ef að næg þátttaka fæst þá verður byrjenda námskeið í Amigurumi hekli á Tjörn. Lágma...
20/09/2024

Byrjenda námskeið í Amigurumi hekli.
Ef að næg þátttaka fæst þá verður byrjenda námskeið í Amigurumi hekli á Tjörn.

Lágmarksfjöldi er 5 og hámarksfjöldi er 10.
Þetta verða þrjú skipti 8, 15 og 22 október.
tveir og hálfur klukkutími í hvert skipti og ætti allaveganna að vera hægt að klára einn bangsa á námskeiðinu.

Námskeiðsgjaldið er 19000 kr. Innifalið í námskeiðinu er ein uppskrift og tæknikafli eftir Árný Heklu en hún er snillingur í að gera Amigurumi uppskriftir sem auðvelt er að skilja og þær eru eins uppbyggðar og flestar erlendar uppskriftir sem hjálpar til seinna meira ef að þið viljið hekla eftir erlendum uppskriftum.
Tæknikaflinn er líka ómissandi til að byrja með en þar eru góðar útskýringar sem gott er að hafa með öllum uppskriftum.

Námskeiðið hentar ekki fyrir þá sem kunna ekki að hekla en nóg er að kunna að hekla loftlykkjur og fastapinna/fastalykkjur.

Ef þið hafið áhuga þá getið þið sent mér skilaboð hér, sent mér email á [email protected] eða hringt í síma 846-6120.

Prjónahelgi 18-20 2024.🧶🧶Nú verður prjóna/hekl/handavinnu helgi á Tjörn frá 18-20 Október þar sem verður prjónað, heklað...
17/09/2024

Prjónahelgi 18-20 2024.🧶🧶
Nú verður prjóna/hekl/handavinnu helgi á Tjörn frá 18-20 Október þar sem verður prjónað, heklað og/eða unnin önnur handavinna og haft það gott alla helgina en
Tjörn er gamalt prestsetur á Vatnsnesi í Húnaþingi vestra og þar sem þetta er gamal (en stórt) íbúðarhús þá erum við ekki of margar, en hámarkið er 12 og því sitjum við allar saman í stofunni og spjöllum og höfum gaman.
Verð á mann er 36-38.000 kr.
Innifalið í því er matur alla helgina, gisting í 1-3 manna herbergjum (þið veljið) ótal prjónaráð.
Endilega hafið samband ef að þið viljið skrá ykkur eða vita meira um helgina, þið getið sent mér skilaboð á messenger, tölvupóst á [email protected] eða hringt í síma 846-6120.

Prjónahelgi 8-10 mars 2024.🧶🧶Nú verður prjóna/hekl helgi á Tjörn frá 8-10 mars þar sem verður prjónað, heklað og haft þa...
19/01/2024

Prjónahelgi 8-10 mars 2024.🧶🧶
Nú verður prjóna/hekl helgi á Tjörn frá 8-10 mars þar sem verður prjónað, heklað og haft það gott alla helgina en
Tjörn er gamalt prestsetur á Vatnsnesi í Húnaþingi vestra og þar sem þetta er gamal (en stórt) íbúðarhús þá erum við ekki of margar, en hámarkið er 12 og því sitjum við allar saman í stofunni og spjöllum og höfum gaman.
Verð á mann er 36-38.000 kr.
Innifalið í því er matur alla helgina, gisting í 1-3 manna herbergjum (þið veljið) ótal prjónaráð og afsláttur í Garnbúð Eddu um helgina.

Prjónahelgi 17-19 Mars. 🧶🧶🧶Nú er komið að því að hafa prjónahelgi á Tjörn ef að næg þátttaka fæst með svona stuttum fyri...
27/02/2023

Prjónahelgi 17-19 Mars. 🧶🧶🧶
Nú er komið að því að hafa prjónahelgi á Tjörn ef að næg þátttaka fæst með svona stuttum fyrirvara 😊
Þessa helgi verður aðallega setið prjónað/ heklað og spjallað í góðum félagsskap, og þær sem að vilja geta auðvitað farið í gönguferð í góða veðrinu sem ég pantaði þessa helgi.
Helgin kostar 35.000 kr. Innifalið í verðinu er gisting í 1-3 manna herbergjum. Matur alla helgina og eins verða einhverjir afslættir í boði af einhverju prjóna tengdu.
Endilega sendið mér skilaboð eða hringið í síma 846-6120 ef að þið viljið skrá ykkur eða fá nánari upplýsingar.

Heklað 14-16 október. 🧶🧶Á Tjörn verður Heklhelgi 14-16 Október 2022. Þá kemur Árný Hekla og verður með Amigurumi hekl ná...
20/08/2022

Heklað 14-16 október. 🧶🧶
Á Tjörn verður Heklhelgi 14-16 Október 2022. Þá kemur Árný Hekla og verður með Amigurumi hekl námskeið, hún verður með okkur að hekla og aðstoða alla helgina.
En Árný Hekla er snillingur í að gera Amigurumi uppskriftir og hefur gefið út tæknikafla sem að nýtist vel fyrir byrjendur í amigurumi hekli jafnt sem lengra komna. Árný Hekla er einnig vön að halda námskeið og kenna fólki að hekla.
Innifalið í námskeiðinu hjá henni er 1 uppskrift og tæknikaflinn.
Verðið fyrir helgina er 45.000 kr. Innifalið í því er gisting í 1-2 manna herbergjum og einu þriggja manna herbergi, matur alla helgina, námskeið í amigurumi hekli og góður félagsskapur alla helgina.
Endilega sendið mér skilaboð eða hringið í mig í síma 846-6120 ef þið hafið áhuga.
Kveðja Olga Lind.

Prjónahelgi 🧶🧶🧶Nú er komin dagsetning á næstu prjónahelgi á Tjörn en hún verður helgina 21-23 október.Þessi helgi verður...
17/08/2022

Prjónahelgi 🧶🧶🧶
Nú er komin dagsetning á næstu prjónahelgi á Tjörn en hún verður helgina 21-23 október.
Þessi helgi verður svipuð og verið hefur aðallega setið og prjónað í góðum félagsskap, borðað góðan mat, prjónað, heklað, hlegið og spjallað. Verðið fyrir helgina er 35.000 kr. á mannin og innifalið í því er matur alla helgina, gisting í 1-3 manna herbergjum og svo verða afslættir í boði af einhverju prjóna tengdu 😊

rauður dagur :)
13/07/2018

rauður dagur :)

Handspunnin grá lambsull 80% og grá angóru fiða 20%
29/06/2018

Handspunnin grá lambsull 80% og grá angóru fiða 20%

Jurtalitaður Léttlopi.  þetta er restin af honum, núna verður aðallega litað af mínum kindum :)
29/06/2018

Jurtalitaður Léttlopi. þetta er restin af honum, núna verður aðallega litað af mínum kindum :)

jurtalitað einband.
29/06/2018

jurtalitað einband.

29/06/2018

Address

Hvammstangi

Telephone

+3548466120

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lopalind posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Lopalind:

Share

Category