Powena

Powena Powena selur lausnir og vörur til rafmagnsmælinga í byggingum og rafmagnshleðslu fyrir rafbíla.
(1)

Við bjóðum uppá rafmagnsvöktunarþjónustuna Rafvaktina til að gera notkun og kostnað rafmagns sýnilegan og sundurliðaðan og vakta óvænt frávik í álagi. Við bjóðum einnig uppá rafmagnsbílahleðsluþjónustuna Hleðsluvaktina til að gera hleðslu rafbíla örugga, gjaldfærða, rekjanlega og stílhreina.

Address

Seljabót 7
Hafnarfjörður
240

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545131900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Powena posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Powena:

Share

Fjölskyldurekið fyrirtæki

Við eigum rætur okkar að rekja til ársins 2005 þegar við, Hilmir Ingi Jónsson og Svanhildur Björk Hermannsdóttir, unnum saman að þeirri hugmynd að koma straummælingum í rafmagnsöryggi. Tilgangurinn var fyrst og fremt að gera álag í rafmagnsöryggjum sýnilegt til að hjálpa fólki og fagmönnum að skilja hvort álag væri orðið áhættusamt. Árið 2009 stofnuðum við nýsköpunarfyrirtækið ReMake Electric ehf. (síðar nafnabreytt í eTactica ehf.) til að koma hugmyndinni á markað. Hugmyndin þroskaðist í höndunum á starfsfólki ReMake sem bjó til fyrsta veflæga orkueftirlitskerfið í heiminum með mælingum niður á rafmagnsöryggi. Tilgangurinn hafði vaxið yfir í að kortleggja rafmagnsnotkun í byggingum til að koma í veg fyrir orkusóun með ítarlegri vöktun og greiningu. Powena ehf. var stofnað árið 2014 þegar við hættum störfum fyrir ReMake og gerðumst þjónustu- og endursöluaðilar að eTactica lausnum hjá ReMake.

Okkar sýn er að öll fyrirtæki noti orkumælingar til að hagnýta sína orkunotkun og velji okkur til að sjá um það fyrir sig. Tilgangurinn okkar með Powena er að hjálpa fyrirtækjum að nota betri upplýsingar um þeirra orkunotkun til að eyða sinni orkusóun og minnka sitt umhverfisspor.