17/11/2023
Afsakið hamfarahlé !!
Við erum miður okkar yfir ástandinu sem nú ríkir í okkar fallega heimabæ þar sem okkar fjölskylda, vinir og starfsfólk býr og okkar aðalskrifstofa ásamt lagerhúsnæði er til húsa.
Við vinnum nú að því að fá og bíðum eftir leyfi til þess að komast inn í Grindavík að sækja tölvur, skjöl og vörur til þess að koma starfsemi okkar í sem besta form sem allra fyrst. Við höfum lagt áherslu á að okkar starfsfólk hafi tíma til að huga að fjölskyldunni, átta sig á ástandinu og koma sér fyrir í þessum breyttu aðstæðum.
Söluskrifstofa okkar í Garðabæ er því lokuð um stund og röskun gæti verið á okkar símsvörun. Við viljum samt biðja þá sem vilja hafa samband við okkur að hringja í 5131900 eða senda okkur netpóst á [email protected]
Ástandið hefur haft áhrif á sum af okkar verkefnum og valdið töfum en við erum að vinna það upp og munum ekki láta náttúruhamfarir stöðva okkur. Nýjar vörur væntanlegar, nýr lager á leiðinni og mikið framundan hjá okkur 💪👌
Við viljum þakka okkar samstarfsaðilum og viðskiptavinum fyrir samhug og kveðjur. Við munum vinna hörðum höndum svo að okkar hundruðir viðskiptavina finni sem allra minnst fyrir okkar breyttu aðstæðum.
Við erum því með opið fyrir pantanir og tilboðsgerð fyrir alla.
Okkar markmið er að vinna okkur uppúr þessum ósköpum og sækja sem flest ný verkefni til að veita áfram góða þjónustu með okkar frábæru vörum á hagkvæmum kjörum.
Sendum öllum Grindvíkingum allann okkar samhug og innilegar baráttukveðjur. Guð blessi Grindavík 🙏💙💛
Með kærri kveðju
Frá öllum í Hleðsluvaktinni ❤️