Bakkabúðin Flateyri

Bakkabúðin Flateyri Hér á þessari síðu munum við, starfsmenn Bakkabúðar, reyna að uppfæra ýmsar upplýsingar um opnunartíma, tilboð og annað slíkt.

Ef þér líkaði við Bakkabúð ætti þér að líka við Gunnukaffi ❤️
29/06/2020

Ef þér líkaði við Bakkabúð ætti þér að líka við Gunnukaffi ❤️

Í sumar verður opið frá 11-21 alla daga.
Grillið verður opið frá 11:30- 20:30.

21/06/2020

Við ætlum að opna kl 15 í dag það verður heitt á könnunni allir velkomnir. En það verður formlega opnað síðar

Bakkabúð hættir rekstri verslunar á Flateyri.Gunnukaffi opnar verslun á Flateyri – í Hafnarstræti 11.Ákveðið hefur verið...
17/06/2020

Bakkabúð hættir rekstri verslunar á Flateyri.
Gunnukaffi opnar verslun á Flateyri – í Hafnarstræti 11.

Ákveðið hefur verið að loka Bakkabúð og hætta rekstri verslunarinnar. Síðasti afgreiðsludagur er í dag 17. júní.

Örvæntið þó ekki þar sem Gunna og Jónsi í Gunnukaffi hafa ákveðið að reka áfram verslun á Flateyri, í húsnæði Gunnukaffis í Hafnarstræti 11 og verður verslunin í afar svipaðri mynd og hún er í dag, þ.e. dagvörur, skyndimatur og almennar nauðsynjavörur. Gera má ráð fyrir að verslunin þar opni á allra næstu dögum.

Bakkabúð þakkar viðskiptin og tryggð Flateyringa og annarra í gegnum tíðina.

Þessar kjarnakonur komu færandi hendi í Bakkabúð á dögunum. Breiðdalsfiskur fæst nú í Bakkabúð og við mælum auðvitað með...
10/06/2020

Þessar kjarnakonur komu færandi hendi í Bakkabúð á dögunum. Breiðdalsfiskur fæst nú í Bakkabúð og við mælum auðvitað með honum fyrir allan peninginn....litlar 1950 kr :-)

Breiðadalsfiskur ehf. er harðfiskverkun sem staðsett er í Neðri Breiðadal, Önundarfirði. Þetta er lítið fjölskyldufyrirtæki í eigu Gunnars Þórissonar og Jóhönnu Óskar Halldórsdóttur.

Uppfærsla og viðbót við fyrri færslu:

Ég hef verið beðin um að koma því skila frá alls ótengdum aðila að þetta er hreinlega besti harðfiskur sem til er

Það er tilvalið að eyða sjómannadeginum á Flateyri og koma svo við í Bakkabúð og fá sér pylsu og ís í lok dags. :-)
05/06/2020

Það er tilvalið að eyða sjómannadeginum á Flateyri og koma svo við í Bakkabúð og fá sér pylsu og ís í lok dags.

:-)

Helgin í Bakkabúð byrjar vel þegar þessi geggjaða vefja fer tímabundið á matseðilinn. Vefja með rifnu svínakjöt að hætti...
05/06/2020

Helgin í Bakkabúð byrjar vel þegar þessi geggjaða vefja fer tímabundið á matseðilinn.

Vefja með rifnu svínakjöt að hætti Filipseyinga, pikkluðum rauðlauk, salati, ferskum fetaosti og salsa sósu.

Sjómannadagstilboð á meðan birgðir endast: Vefja og lítill Doritos Cheese á litlar 1.750 krónur.

Þú gætir reyndar þurft að henda nokkrum hundrað köllum í viðbót svo að þú getir fengið þér franskar með og ís eða sjeik í eftirrétt.

Opið föstudag 16-19.30, laugardag 12-19.30 og sunnudag 12-19.30.

Mundu bara að grillið lokar 19.15!

Sjáumst í Bakkabúð um helgina

Á þessum öðrum degi Hvítasunnu er tilvalið að eyða deginum á Flateyri, dorga aðeins á bryggjunni, kíkja út á Klofning og...
01/06/2020

Á þessum öðrum degi Hvítasunnu er tilvalið að eyða deginum á Flateyri, dorga aðeins á bryggjunni, kíkja út á Klofning og hoppa svo dálítið á ærslabelgnum.

Að því loknu mætti nú skottast út í Bakkabúð og gæða sér á gómsætri BLT samloku, frönskum með geggjaðri brúnni sósu og ís eða sjeik í eftirrétt.

Anna Anika tekur á móti ykkur með bros á vör í allan dag og minnir á að grillið er opið til kl. 19.15.

Opið í dag frá 12-19.30.

BLT samloka, franskar og heit brún sósa! Karamellusjeik í eftirmat!Við höldum ótrauð áfram með nýjungar og þessa helgi e...
29/05/2020

BLT samloka, franskar og heit brún sósa! Karamellusjeik í eftirmat!

Við höldum ótrauð áfram með nýjungar og þessa helgi er það sjóðandi heit BLT samloka sem bætist við á seðilinn. Já og geggjuð brún sósa með frönskunum.

Já og ísvélin auðvitað komin í gang. Ís í boxi eða brauði, sjeik, nammi og alls konar sósur.

Grillið opið til 19.15 alla helgina.

Sjáumst!

Er til skýrara merki um að sumarið sé á næsta leyti en þetta?Í Bakkabúð fögnum við komandi sumri með viðeigandi hætti og...
28/05/2020

Er til skýrara merki um að sumarið sé á næsta leyti en þetta?

Í Bakkabúð fögnum við komandi sumri með viðeigandi hætti og setjum við ísvélina í gang á morgun, föstudag.

Ís í formi, ís í boxi og sjeik í boði fyrir börn á öllum aldri. Dýfur og nammi og alls konar bragð.

23/05/2020

Bensíndælan er sem stendur biluð. Viðgerð er í vændum en ekki fyrr en á morgun.

Address

Bót
Flateyri
425

Telephone

4567878

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bakkabúðin Flateyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share