Geislar Gautavík

Geislar Gautavík Beint frá býli / verslun -hönnun & framleiðsla á gjafavörum & leikföngum, ráðgjöf, búfjár- & hamprækt Á býlinu Geislar Gautavík fer fjölbreytt starfsemi fram.

Yfir sumartímann er býlið formlega opið ferðamönnum innan tilgreinds opnunartíma. Yfir vetrartímann er opið eftir þörfum. Þeir sem eiga leið hjá er velkomið að líta við og versla í versluninni ef hliðið er opið. Hægt er að panta fræðslu/leiðsögn fyrir einstaklinga og hópa á [email protected]. Meginstarfsemi Geisla er hönnun og framleiðsla á módel leikföngum, gjafavörum og minjagripum sem eru seld

ir í verslunum um land allt, ásamt skurðarþjónustu (laserskurður) og hönnunarráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Á skjótan, sveigjanlegan og hagstæðan hátt er hægt að sérsníða lausnir og vörur fyrir viðskiptavini í litlu upplagi. OPNA BÝLIÐ
Facebook hópur fyrir opna býlið og þá sem hafa áhuga á að fylgjast með lífi og starfi á bænum: https://www.facebook.com/groups/624077578403686

Á býlinu Gautavík í Berufirði, 766 Djúpivogur, er:

Úti- og inniræktun á iðnaðarhampi o.fl. 🌱🌱🌱

Fræðslusetur um iðnaðarhamp og samrækt (aquaponics) 🔬

Verslun og verkstæði: 🛠

- Gjafavörur, minjagripir og módel leikföng hönnuð og framleidd á bænum 🎁
- Afurðir af bænum: Hampte, landnámshænuegg, andaregg og lambakjöt (frá okt) 🌱🥚🥩
- Snarl í lokuðum umbúðum 🥨 aðallega frá íslenskum smáframleiðendum - ssfm.is
- Heitir og kaldir drykkir ☕️🥤🧃
- Ís- og frostpinnar 🍦
Húsdýr:
- Sauðfé 🐏🐑🐑🐑🐑
- Hestar (ekki til útreiða) 🐎🐎
- Grísir 🐖🐖🐖
- Landnámshænur 🐓🐓🐓🐓🐓
- Endur 🦆🦆🦆🦆
- Hundar 🦮🐕‍🦺
- Silungar (í fiskabúri) 🐟🐟🐟🐟🐟🐟..og svo að sjálfsögðu prinsessurnar tvær, þær Týra og Lilla 🐕🐩

Golfvöllur - heimatilbúinn par 3, 7-holu völlur ⛳️

Íþróttasvæði fyrir börn inni í hlöðunni, útileiksvæði og útileikföng 🥅⚽️🏀🥊🏓🌳🌳🌳

Forn verslunarstaður - merktar gönguleiðir og upplýsingar 🥾 um sögufrægt svæði með fornminjum, fallegar ár og litrík fjara 🌊💦

HÖNNUNARVÖRURNAR

Gjafavörurnar og minjagripirnir eru fallegir og hugvitslega hannaðir út frá aldagamalli rúmfræði (Blómi lífsins) þar sem meðal annars er notast við forn mynstur og rúnir. Módel leikföngin gefa börnum færi á að búa til sín eigin leikföng með því að líma módelin saman og mála. Hægt er að velja á milli lítill og einfaldra (12 partar) til stærri og flóknari (104 partar). Vörurnar eru umhverfisvænar, gerðar úr krossviði og öðrum náttúrulegum hráefnum og eru allar framleiddar á verkstæði Geisla í Gautavík.

Þær pakkast flatar og eru í lágmarks umbúðum sem brotna 100% niður í náttúrunni. Þær taka því mjög lítið pláss í ferðatöskum, póstsendingum og hillum verslana. Vörur Geisla eru seldar í um 40 verslunum um land allt, þá helst gjafavöru- og minjagripaverslunum. Allt vöruúrvalið má nálgast í verslun Geisla í Gautavík og í vefversluninni á www.geislar.is. Ef þú hefur áhuga á að selja vörur Geisla í þinni verslun, hafðu samband í síma 869-7411 (Oddný) eða 777-6190 (Pálmi) eða með töluvpósti á netfangið [email protected] og við gefum þér aðgang að heildsöluvefverslun okkar á www.geislar.is.

Selt í matvöruverslunum um land allt. Nánari upplýsingar um teið og lista yfir söluaðila má finna vefnum okkar www.geisl...
12/05/2022

Selt í matvöruverslunum um land allt. Nánari upplýsingar um teið og lista yfir söluaðila má finna vefnum okkar www.geislar.is / vefverslun / matvæli.

25% afsláttur af teinu okkar á "Heilsu- og lífsstílsdögum" Nettó um land allt til sunnudagsins 6. febrúar.
02/02/2022

25% afsláttur af teinu okkar á "Heilsu- og lífsstílsdögum" Nettó um land allt til sunnudagsins 6. febrúar.

Allar vinsælustu vörurnar okkar fást í Icewear Laugavegi 91 og Austurstræti 🎁Yfirlit yfir sölustaði okkar má finna á www...
17/12/2021

Allar vinsælustu vörurnar okkar fást í Icewear Laugavegi 91 og Austurstræti 🎁

Yfirlit yfir sölustaði okkar má finna á www.geislar.is

💚 ÍSLENSKT HAMPTE Í FYRSTA SINN FÁANLEGT Í VERSLUN Á ÍSLANDI 💚Finola hampteið okkar fæst nú í öllum stærstu verslunum Kr...
31/08/2021

💚 ÍSLENSKT HAMPTE Í FYRSTA SINN FÁANLEGT Í VERSLUN Á ÍSLANDI 💚

Finola hampteið okkar fæst nú í öllum stærstu verslunum Krónunnar; Granda, Lindum, Bíldshöfða, Flatahrauni, Mosfellsbæ og Selfossi - og einnig í Snjallverslun Krónunnar 💛

Fæst einnig í vefversluninni okkar - www.geislar.is - sendum frítt um land allt - kemst inn um póstlúgu 🧡

NÝ VARA frá Geislar Gautavík 💚Hampkertastjaki fyrir hampara ☺️3.500 kr. - hægt að panta með tölvupóstigeislar@geislar.is...
06/07/2021

NÝ VARA frá Geislar Gautavík 💚
Hampkertastjaki fyrir hampara ☺️

3.500 kr. - hægt að panta með tölvupósti
[email protected]
Pakkast flatur - kemst inn um póstlúgu 💌

OPIÐ BÝLI - AUSTURLANDInni- og útiræktun og fræðslusetur um iðnaðarhamp og samrækt, húsdýr, golfvöllur, inniíþróttasvæði...
01/07/2021

OPIÐ BÝLI - AUSTURLAND

Inni- og útiræktun og fræðslusetur um iðnaðarhamp og samrækt, húsdýr, golfvöllur, inniíþróttasvæði, útlileikföng, á, fjara og fornminjar.

Verslun með handverk sem er hannað og framleitt á bænum og matvæli, m.a. frá íslenskum smáframleiðendum matvæla.

Opnunartími: 11-16 alla daga - hópar geta komið utan þess tíma ef samið er um það fyrirfram.

Við erum einnig með hóp á Facebook fyrir þá sem vilja fylgjast með lífi og starfi á bænum: https://www.facebook.com/groups/624077578403686

Ábúendurnir á bænum Gautavík í Berufirði, þau Pálmi Einarsson, Oddný Anna Björnsdóttir og drengirnir þeirra þrír, 15, 13 og 7 ára, hafa ákveðið að opna býlið fyrir ferðamönnum í sumar. Formleg opnun verður 1. júlí og er planið að hafa opið frá kl. 11-16 alla daga viku...

Þá hefur nafni fyrirtækisins loks verið formlega breytt úr Geislar hönnunarhús ehf. - sem var stofnað árið 2012 í Reykja...
25/06/2021

Þá hefur nafni fyrirtækisins loks verið formlega breytt úr Geislar hönnunarhús ehf. - sem var stofnað árið 2012 í Reykjavík en fluttist með eigendum á jörðina Gautavík í Berufirði sumarið 2018 - í Geislar Gautavík ehf. 🥳

Í þessu myndaalbúmi eru myndir, verð og upplýsingar um þær vörur sem eru sérstaklega hannaðar sem jólavörur. Þær má alla...
04/12/2020

Í þessu myndaalbúmi eru myndir, verð og upplýsingar um þær vörur sem eru sérstaklega hannaðar sem jólavörur. Þær má allar finna í vefverslun okkar á www.geislar.is.

Pantið í gegnum vefverslunina, með því að senda okkur póst á [email protected] eða hafa samband í gegnum Messenger eða síma 869-7411 / 777-6190.

Íslensk hönnun og framleiðsla. Sendum frítt um land allt.

Jólavörur - íslensk hönnun og framleiðsla.

Pantið í gegnum vefverslunina okkar á www.geislar.is, með því að hringja eða senda okkur skilaboð á Facebook.

SENDUM FRÍTT UM LAND ALLT

Í þessu myndaalbúmi eru myndir ásamt upplýsingum og verði allra gjafavaranna okkar. Jólavörurnar eru í sér albúmi.Pantið...
03/12/2020

Í þessu myndaalbúmi eru myndir ásamt upplýsingum og verði allra gjafavaranna okkar. Jólavörurnar eru í sér albúmi.

Pantið með því að senda póst á [email protected] eða í gegnum vefverslunina á www.geislar.is.

Íslensk hönnun og framleiðsla. Sendum frítt um land allt.

Íslensk hönnun og framleiðsla.

Pantið í gegnum vefverslunina okkar á www.geislar.is, með því að hringja eða senda okkur skilaboð á Facebook.

SENDUM FRÍTT UM LAND ALLT.

Address

Gautavík
Djúpivogur
766

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Geislar Gautavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Geislar Gautavík:

Share

Category