01/07/2026
Gleym mér ei 40 ára.
Ja hérna hér,,,,, tíminn flýgur og það hratt ....
Á þessum degi 1.júlí 1986 fyrir 40 árum síðan kom ég af skrifstofu Borgarneshrepps stolt skotta aðeins 23 ára með pappír upp á landleigusamning um afnot af Kárastaðalandi fyrir Gróðrarstöðina mína Gleym-mér-ei.
Vil ég við þetta tækifæri þakka öllum og þá sérstaklega þeim sem standa mér næst fyrir ómælda aðstoð og óeigingjant starf, við að aðstoða mig í hvívetna þegar mikið hefur legið við, sem og aðra daga. þið vitið hver þið eruð og takið vonandi við þakklæti mínu og knúsi næstu daga.
Jafnframt eru það þau verulega góðu tengsl við sífelt stækkandi viðskiptavinahóp sem hefur fylgt mér, sumir frá upphafi sölu og svo bætast alltaf einhverjir nýjir við ár hvert. Þetta er algjörlega ómetanlegt fyrir mitt litla fyrirtæki, þar sem þessi skotta ákvað unga að árum að það ætti að vera gaman að fara í vinnuna og ákvað að læra garðyrkju og stofna fyrirtæki vinna í mold, sandi og litadýrð blómanna þá verð ég að segja í tilefni dagsins „ blóm og kransar afþakkaðir „ en knús og kossar vel þegnir.