sveina.is

sveina.is Sveina Björk - Textilhönnun - Prjónahönnun - Garnlitari - Garnástríða Vefverslun og heimabúð með garn og prjóna/hekl tengdar vörur. Prjónahönnun

Eva cardigan eftir Petite knit komin á gínuna. Smá þvottavéla mistök 🙈 Gleymdi að minnka vinduna niður í 400 snúninga og...
02/10/2023

Eva cardigan eftir Petite knit komin á gínuna. Smá þvottavéla mistök 🙈 Gleymdi að minnka vinduna niður í 400 snúninga og 800 var full mikið fyrir þetta garn og þæfðist það pínu en kom ekki að sök og passar hún mjög vel þrátt fyrir að hafa þéttst aðeins. Nú er bara að bíða eftir nýju fínu tölunum sem við erum að byrja með og þá verður hægt að fara að nota hana 🤩 Gollan er prjónuð úr BC Loch lomond, kannski mun það fást einhvern tímann í Garn í gangi. Þetta keypti ég í á Akranesi og fór ég með tæplega 350g í st 5.

Nýjasta uppfitið er The Turtle dove cardigan úr nýjasta Laine magazine. Garnið eru tveir þræðir frá hinu dásamlega fyrir...
23/09/2023

Nýjasta uppfitið er The Turtle dove cardigan úr nýjasta Laine magazine. Garnið eru tveir þræðir frá hinu dásamlega fyrirtæki No 3 og No 4. Liturinn kemur nú kannski ekkert á óvart 🙈 Annars fór ég með 4 verkefni með mér erlendis…………búin að fitja uppá þremur nýjum í ferðinni. Er ég búin að fella af einhverju? Nei nei bara aðeins of spennandi að komast í nýtt garn og nýjar uppskriftir 🤩 alltafaðveragarn

The Monte socks with   are now available in englis and danish.
08/08/2023

The Monte socks with are now available in englis and danish.

Elska að prjóna   Hér eru einfaldir sokkar úr Prjónagleðilitnum frá  2023 Þessi hæll er svo mikil snilld og auðvelt að l...
23/07/2023

Elska að prjóna Hér eru einfaldir sokkar úr Prjónagleðilitnum frá 2023 Þessi hæll er svo mikil snilld og auðvelt að laga að fætinum og breyta ef þarf fyrir extra háa rist t.d. Aldrei að fara fram og til baka og engar stuttar umferðir! Ef þú ert að hanna sokka og langar að nota hælinn minn er það velkomið, bara nefna Sveinuhæl í uppskriftinni. Uppskriftin af hælnum er í Monte sokkunum eftir mig sem fæst bæði á Raverly og hjá Garn í gangi. english and danish translation very soon.

Bláklukka bolur kemur út í dag í tilefni Prjónagleðinnar á Blönduósi. Í hann fer Lang Lino og verður það einmitt með okk...
09/06/2023

Bláklukka bolur kemur út í dag í tilefni Prjónagleðinnar á Blönduósi. Í hann fer Lang Lino og verður það einmitt með okkur Írisi á Blönduósi um helgina. Því miður verður það ekki inní búð fyrr en eftir helgina. Bolurinn er í 8 stærðum og þarf frá 4 uppí 10 dokkur í hann.

Þegar kona fer út í báðum nýju prjónaverkefnunum sínum. Bolurinn er   eftir  og peysan er   eftir .is . Tindra byrjar í ...
23/05/2023

Þegar kona fer út í báðum nýju prjónaverkefnunum sínum. Bolurinn er eftir og peysan er eftir .is . Tindra byrjar í samprjóni hjá okkur í byrjun júní, forsala á garni er lokið en að sjálfsögðu hægt að vera með ennþá með garni úr búðinni. Í minni peysu er Holst supersoft haldið saman við Lang casmere lace og fóru tæplega 900m í st L, stytti hana aðeins og hafði ermarnar beina fram. Koma betri myndir í dag. Í bolnum er nýtt garn sem er á leiðinni til okkar frá Holst, Haya sem er blanda af alpakka, mulberry silki og Yak og fóru ca 3.5 dokka eða 650m í bolinn, aftur styttur (konan er bara ekki nógu búklöng 🤪) og st 4.

Elska nýju húfuna mína sem elsku  gerði og hannaði handa mér úr garni frá  , ég gerði svo húfu handa henni út  . Elska s...
21/05/2023

Elska nýju húfuna mína sem elsku gerði og hannaði handa mér úr garni frá , ég gerði svo húfu handa henni út . Elska svona samstarf og húfan mín er alveg eins og Edda, algjört æði 🤩

Úfið hár og smá þreytuleg en…………nýr bolur og nýjir eyrnalokkar. Bolurinn er Palm tee eftir Lene Holme og eyrnalokkarnir ...
20/05/2023

Úfið hár og smá þreytuleg en…………nýr bolur og nýjir eyrnalokkar. Bolurinn er Palm tee eftir Lene Holme og eyrnalokkarnir passa svo fínt við. Bolurinn kláraður í Sinalunga og eyrnalokkarnir keyptir þar í dásamlegri búð við torgið rétt hjá

Eru þið að sjá hvað Tildra gollan mun passa vel við kjólinn sem ég er í 🤩 Nú er bara að klára hana, þetta verður önnur a...
17/05/2023

Eru þið að sjá hvað Tildra gollan mun passa vel við kjólinn sem ég er í 🤩 Nú er bara að klára hana, þetta verður önnur af hjá mér, hvað verður ykkar? Samprjónið á Tildra golla verður í byrjun júní og er byrjað að selja garnpakka í forsölu í hana. Komdu og vertu með. .is

Hvað getur maður sagt eftir svona dásemdardaga á Ítalíu? Félagsskapurinn, maturinn, aðbúnaðurinn allt uppá 10 og Toskana...
17/05/2023

Hvað getur maður sagt eftir svona dásemdardaga á Ítalíu? Félagsskapurinn, maturinn, aðbúnaðurinn allt uppá 10 og Toskana komið í uppáhald. Við vorum svo heppinn (eða Gunni) að fá að aðstoða hana Maríu aðeins við og dvöldum í íbúðinni sem hún er að fara að leigja út. Getum ekki annað en mælt með dvöl hjá Maríu í Sinalunga og svo er örstutt í mörg af rómuðustu þorpum Toskana. Kyrrðin og fuglasöngurinn er svo dásamlegur hérna og kemur maður endurnærður á líkama og sál heim. Takk María og Stefano, við komum aftur 🙏🏻❤️

Þorpaleiðangur í kringum Sinalunga. Þetta er svo dásamlegt svæði og margt fallegt að sjá. Minnir okkur pínu á uppáhaldss...
16/05/2023

Þorpaleiðangur í kringum Sinalunga. Þetta er svo dásamlegt svæði og margt fallegt að sjá. Minnir okkur pínu á uppáhaldssvæðin okkar í Englandi. Í þessu krúttlega þorpi búa bara útlendingar, væri ekki amarlegt að eiga sumar afdrep þarna ❤️

Sinalunga í blóma ❤️
13/05/2023

Sinalunga í blóma ❤️

Address

Akureyri
600

Opening Hours

14:00 - 18:00

Telephone

+3548916298

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when sveina.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to sveina.is:

Share