Fjallakofinn

Fjallakofinn Fjallakofinn er útivistarvöruverslun með vörur í háum gæðaflokki. Fyrirtækið og starfsfólk þess hefur að geyma mikla reynslu á sviði útivistar og útiveru.

Beinn sími: 510-9510

Álafosshlaup Scarpa🏃‍♂️Föstudaginn 12. júní verður hið árlega Álafosshlaup Scarpa haldið í Mosfellsbæ kl. 18:00.Í boði v...
05/06/2026

Álafosshlaup Scarpa🏃‍♂️

Föstudaginn 12. júní verður hið árlega Álafosshlaup Scarpa haldið í Mosfellsbæ kl. 18:00.
Í boði verða tvær vegalengdir:
▫️5,6 km
▫️10 km
Scarpa hlaupaskórnir frá Fjallakofanum fylgja þér alla leið - hvort sem markmiðið er að bæta tímann eða njóta hlaupsins í fallegu umhverfi Mosfellsbæjar.
Skráðu þig og taktu þátt í skemmtilegu hlaupi fyrir alla! https://netskraning.is/alafosshlaupid/
Skoða hlaupaskó👉 https://fjallakofinn.is/voruflokkur/hlaupaskor

Vinsælu Kids Ride Shotgun hjólasætin eru lent í Fjallakofanum! Vorum að fá nokkur stykki af Shotgun MTB Pro hjólasætum o...
03/06/2026

Vinsælu Kids Ride Shotgun hjólasætin eru lent í Fjallakofanum!
Vorum að fá nokkur stykki af Shotgun MTB Pro hjólasætum og Shotgun Pro Evo Combo ungbarnasæti ásamt Shotgun togreipi til að draga krakka upp brekkuklifur. Tryggðu þér sæti og skelltu þér í hjólatúr með barninu 😎

https://fjallakofinn.is/voruflokkur/kids-ride-shotgun?p=5

Helgi og Hjálmar vinir okkar úr Hæ Hæ podcastinu komu í heimsókn til okkar í Fjallakofann og völdu sér flotta, góða Scar...
29/05/2026

Helgi og Hjálmar vinir okkar úr Hæ Hæ podcastinu komu í heimsókn til okkar í Fjallakofann og völdu sér flotta, góða Scarpa skó fyrir göngutúrana og utanvegahlaupin 🥾🏃🏽‍♂️🤠
Til hamingju með nýju ítölsku skóna ykkar snillingar


Komið fagnandi á Scarpa dagana - 20-60% afsláttur 💥
Fjallakofinn - Hallarmúla 2 - fjallakofinn.is

Scarpadagar í fullum gangi! 🥾 20-60% afsláttur. Kíktu við í Fjallakofann Hallarmúla og gerðu góð kaup og græjaðu nýja sk...
26/05/2026

Scarpadagar í fullum gangi! 🥾 20-60% afsláttur.
Kíktu við í Fjallakofann Hallarmúla og gerðu góð kaup og græjaðu nýja skó fyrir sumarið, fjallgöngurnar, hlaupin, útilegurnar og ævintýrin 😊

Saga SCARPA byrjar í fjöllunum. ⛰️Sagan hefst á Ítalíu árið 1938 í litlum bæ sem heitir Asolo, svæði sem var þekkt fyrir...
23/05/2026

Saga SCARPA byrjar í fjöllunum. ⛰️

Sagan hefst á Ítalíu árið 1938 í litlum bæ sem heitir Asolo, svæði sem var þekkt fyrir handgerða fjallaskó og leðurvinnu.
Nafnið “Scarpa” þýðir einfaldlega “skór” á ítölsku, en það varð síðar að skammstöfun fyrir: S.C.A.R.P.A. = Società Calzaturieri Asolani Riuniti Pedemontana Anonima sem má lauslega þýða sem “samfélag skósmiða frá Asolo-svæðinu”.
Fyrirtækið varð til þegar færustu skósmiðirnir í bænum sameinuðust með eitt markmið – að búa til fjallaskó sem gætu staðist alvöru aðstæður.
Á 6. og 7. áratugnum fóru fjallaklifrarar og alpinistar víða um Evrópu að treysta á Scarpa vegna endingar, þæginda og áreiðanleika við erfiðar aðstæður.
Á 8. og 9. áratugnum sprungu vinsældir klettaklifurs og Scarpa varð fljótt stórt nafn í heimi tæknilegra klifurskóa. Þeir voru meðal fyrstu fyrirtækja til að þróa mjög nákvæma og sveigjanlega skó fyrir klifur.
Í dag hefur Scarpa sérstaklega sterkt orðspor fyrir að halda í ítalska handverkshefð. Enn í dag eru margir þættir framleiðslunnar unnir með höndunum – þar á meðal saumaskapur, líming, samsetning og gæðaeftirlit.
Scarpa er í dag fjölskyldurekið fyrirtæki af góðum vinum okkar í Parisotto fjölskyldunni og er merkið talið eitt virtasta útivistar-skómerki heims.
Hvert hefur Scarpa fylgt þér?🥾

Scarpadagar hefjast á morgun föstudaginn 22. maí. 20-60% afsláttur af öllum Scarpa skóm💥Við hlökkum til að taka á móti y...
21/05/2026

Scarpadagar hefjast á morgun föstudaginn 22. maí.
20-60% afsláttur af öllum Scarpa skóm💥
Við hlökkum til að taka á móti ykkur, sjáumst í Hallarmúla 2!🥾☀️

Nýtt í Fjallakofanum - Bemoov barnahjól🚲Bemoov Bikes eru belgísk barnahjól sem hafa fengið góða dóma og eru alveg sérsta...
15/05/2026

Nýtt í Fjallakofanum - Bemoov barnahjól🚲

Bemoov Bikes eru belgísk barnahjól sem hafa fengið góða dóma og eru alveg sérstaklega létt og þægileg.

Hjólin eru auðveld í meðförum, með barnvænum bremsum og góðri setstöðu sem hjálpar börnum að öðlast öryggi og sjálfstraust á hjólinu!

Skoða Bemoov hjól hér👉 https://fjallakofinn.is/voruflokkur/hjol?p=8&tagFilter=V%C3%B6rumerki;Bemoov

Julbo fyrir þína útivist👓🌳Julbo er franskt vörumerki sem sérhæfir sig í sport- og útivistargleraugum, sérstaklega fyrir ...
13/05/2026

Julbo fyrir þína útivist👓🌳

Julbo er franskt vörumerki sem sérhæfir sig í sport- og útivistargleraugum, sérstaklega fyrir fjallamennsku, hjólreiðar, skíði og hlaup.

Helstu eiginleikar:
✅ Frábær UV-vörn
✅ Linsur sem aðlagast birtunni sjálfkrafa
✅ Létt og þægileg í hreyfingu
✅ Minni móða og góð loftun

Þau eru sérstaklega sniðug fyrir íslenskar aðstæður þar sem birtan og veðrið geta breyst hratt🌦️
Skoða Julbo hér👉 https://fjallakofinn.is/voruflokkur/solgleraugu

Address

Hallarmúli 2
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 18:00
Tuesday 10:00 - 18:00
Wednesday 10:00 - 18:00
Thursday 10:00 - 18:00
Friday 10:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 16:00

Telephone

+3545109505

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjallakofinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fjallakofinn:

Share