07/03/2025
Ég ætla í pásu í óákveðin tíma ✨
Það kemur kanski ekki mörgum á óvart miðað við hvað ég er búin að vera lítið hér inná að ég ætla í pásu frá Andartakinu
Ég er enn að skipuleggja brúðkaup og hanna bréfsefni í gegnum og mun gera það áfram. En ég hef bara ekki fundið mér þann tíma sem ég þarf til að vera hér líka og mig langar aldrei að gera neitt með hálfum hug. Ég mun kanski koma aftur þegar lífið er komið í aðeins meira ró og meiri tími gefst... En kanski ekki. Hver veit hvert lífið tekur mann.
Takk fyrir allan stuðninginn í gegnum árin og fyrir að preppa mig áfram þegar ég var að byrja á þessu ferðalagi. Hefði ekki getað gert það án ykkar. ❤️❤️