hula.handverk

hula.handverk Verkefnabók prjónarans, prjóna uppskriftir, þvottamerkimiðar.

15/03/2026

Spjall um sáningu sumarblóma og gulróta fræja. Það var beðið um nöfn á sumarblómunum sem ég sái fyrir.
Ilmbaunir – hávaxnar, elska sól og skjól, frekar viðkvæmar
Nellikur – sól, þola illa mikla vökvun, frekar harðgerðar
Eryngium – harðgert, sól, vill þurrari stað
Skjaldflétta – sól eða hálfskuggi, blómviljug, þokkalega harðgerð
Sólblóm – hávaxin, sól, næringarrík mold, frekar harðgerð
Brúðarslör – sól, létt mold, þolir illa ofvökvun, miðlungs harðgert
Lóbelia – lágvaxin, sól eða hálfskuggi, vill raka, frekar viðkvæm
Valmúi – sól, vill ekki blauta mold, frekar harðgerður
Nigella – sól, létt mold, þolir illa bleytu, frekar harðgerð
Fjólur – lágvaxnar, sól eða hálfskuggi, blómstra lengi, þokkalega harðgerðar 🌿

Almennt eru eryngium, valmúi, nigella og nellikur með harðgerðari sumarblómum — en ilmbaunir og lóbelia aðeins viðkvæmari.
Gulrætur vaxa best í sól og lausri mold þar sem ræturnar fá pláss til að þroskast 🥕

13/03/2026

Það er alls ekki of seint að byrja að sá !

Ég fékk að prufuprjóna þessa fínu peysu fyrir Lindu vinkonu mína fyrir nokkrum vikum.  Ég notaði uppgefið garn, Mohair E...
26/02/2026

Ég fékk að prufuprjóna þessa fínu peysu fyrir Lindu vinkonu mína fyrir nokkrum vikum.
Ég notaði uppgefið garn,
Mohair Edition Recy frá
Edy Angola (litur Navy) saman með Titicaca frá Holst (litur Carbon blue)
á 5 mm prjóna.
Einföld, stílhrein og sparileg 💙
Uppskriftin fæst hjá .by.linda
og dásamlega garnið keypti ég í

Elsku litla Sól í  Þessi er ein af nokkrum útgáfum sem ég er búin að gera enda mjög skemmtileg og frekar fljótleg að prj...
23/11/2025

Elsku litla Sól í
Þessi er ein af nokkrum útgáfum sem ég er búin að gera enda mjög skemmtileg og frekar fljótleg að prjóna.
Uppskriftin kom út fyrir stuttu og fæst á hula.is

Lambhúshetta fyrir 1 árs ömmukrútt 🌸Uppskriftin heitir Lambagras og er frí á heimasíðu Hulu.Ég hafði hana í sléttu prjón...
19/11/2025

Lambhúshetta fyrir 1 árs ömmukrútt 🌸
Uppskriftin heitir Lambagras og er frí á heimasíðu Hulu.
Ég hafði hana í sléttu prjóni en uppskriftin segir garðaprjón, ég gerði eyrun líka aðeins stærri.
Prjónuð á pr.nr. 3,5 úr undurmjúku garni sem ég keypti á prjónahátíð í Farnham á Englandi.

Ljósalyng Börn elska liti, ég var með þeirra gleði í huga þegar ég hannaði þessa peysu.Að gera uppskiftina tók smá tíma,...
22/10/2025

Ljósalyng
Börn elska liti, ég var með þeirra gleði í huga þegar ég hannaði þessa peysu.
Að gera uppskiftina tók smá tíma, litirnir og mynstrið þurftu að fá að mætast á sínum hraða.
Útkoman er falleg og skemmtileg peysa, sem mjög gaman er að gera.
Hún er prjónuð á prjóna nr. 4.0 og 4.5 með prjónfestu 20/10.
Uppgefið garn heitir Pop Merino, það er mjög mjúkt og notalegt.
Það fæst í mörgum litum hjá Guðrún Ólöf studio.

Ég fékk að nota nokkrar myndir frá prufuprjónurunum sem prjónuðu peysurnar í mismunandi lita samsetningum.
Takk innikega fyrir hjálpina stelpur 💕






Mamma mín átti afmæli nú á dögunum og datt mér í hug að prjóna fyrir hana hlýja og litríka peysu. Hún elskar liti og hen...
16/10/2025

Mamma mín átti afmæli nú á dögunum og datt mér í hug að prjóna fyrir hana hlýja og litríka peysu. Hún elskar liti og henni er oft kalt. Hún minn mesti peppari og stuðningskona í prjónastússinu og bara lífinu öllu. Mamma er ein jákvæðasta kona sem ég þekki og tæklar lífið með bros á vör, eitthvað sem ég er að æfa mig í ❤️
Hugmyndin af peysunni kom í framhaldi af barnapeysunni Ljósalyng. Kannski geri uppskrift af þessari, sé hana líka fyrir mér í mildari litum.

Bleika peysan.Ég prjónaði þessa djúsí bleiku peysu fyrir elsku Heiðrúnu, ömmu stelpuna mína í sumar. Ég fann enga uppskr...
12/10/2025

Bleika peysan.
Ég prjónaði þessa djúsí bleiku peysu fyrir elsku Heiðrúnu, ömmu stelpuna mína í sumar. Ég fann enga uppskrift sem hentaði svo ég prófaði mig bara áfram þar til ég var sátt við útkomuna.
Bouclé garnið heitir Teddy og fæst en í stroffið notaði ég
Merino Lang frá .

Ásthildur Sóley varð 10ára í sumar.Undanfarin ár hef égboðið ömmustelpunummínum í bæinn í kringum afmælin þeirra. Við ei...
09/09/2025

Ásthildur Sóley varð 10
ára í sumar.
Undanfarin ár hef ég
boðið ömmustelpunum
mínum í bæinn í kringum
afmælin þeirra. Við eigum saman notalegan dag, kikjum á kaffihús,
veljum afmælisgjöf og
borðum saman.
Mér finnst þetta ótrúlega
dýrmæt og skemmtileg stund og þær fá
að njóta sín einar með
ömmu. Þessi afmælisdagur var engin undantekning en mig langaði líka að gleðja á annan hátt.
Ásthildur Sóley á dúkku sem
hún hefur varla látið frá
sér síðan hún fæddist.
Það kemur líklega að því að dúkkan fái stað upp á hillu og því datt mér i hug að prjóna þetta dress á Nonna litla.
Litla mamman varð himin sæl með þessa persónulegu gjöf 💙

Nóvember peysan-fullorðins, eftir Lindu vinkonu mína. Mjög skemmtileg uppskrift og gaman að prjóna.Ég notaði Finull frá ...
10/07/2025

Nóvember peysan-fullorðins, eftir Lindu vinkonu mína.
Mjög skemmtileg uppskrift og gaman að prjóna.
Ég notaði Finull frá Rauma og Alva fylgiþráð frá Filcolana á prjóna nr. 5,0by.linda












Address

Álftanes

Opening Hours

09:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when hula.handverk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to hula.handverk:

Share